Evrópa unga fólksins

Námskeið í Evrópu

Evrópa unga fólksins styrkir ungmenni og aðila í ungmennastarfi til að sækja námskeið og ráðstefnur í Evrópu. 

Mörg þessara námskeiða eru til þess hugsuð að kynnast nánar ungmennaáætlun ESB og þeim möguleikum sem hún hefur uppá að bjóða ásamt því að vera vettvangur til tengslamyndunar til að skapa fjölþjóðleg verkefni með öðrum Evrópubúum.

Evrópa unga fólksins styrkir ferðakostnað og uppihald að undanskildu 5.000 kr. mótframlagi* frá styrkþega. Athugið að mótframlagið getur í sumum tilvikum verið greitt af vinnuveitenda eða stéttarfélagi.

* Athugið að í sumum verkefnum þurfa þátttakendur að greiða ákveðið hlutfall af ferðakostnaði í mótframlag og í sumum tilvikum þátttökugjald. Sé það raunin er það sérstaklega tekið fram við þau námskeið.


Á The European Training Calander er hægt er að skoða öll þau námskeið sem í boði eru á næstunni. 

Hér fyrir neðan er listi yfir námskeið og ráðstefnur sem við mælum með


Markmið: Að þjálfa þá sem starfa með ungu fólki sem er í afbrotum eða sýnir áhættuhegðun í aðferðum til að fyrirbyggja slíka hegðun.
Hvar:  Manchester, Bretlandi 
Hvenær:  27. apríl - 3. maí 2012 
Umsóknarfrestur:  15. mars 2012

Markmið: Málstofa þessi miðar að því að þróa tæki og aðferðir til að samræma stefnu í æskulýðsmálum í sveitarfélögum, landsvísu og á evrópuvísu. 
Hvar:  Ljubljana, Slóveníu 
Hvenær:  24. apríl - 26. apríl 2012 
Umsóknarfrestur:  15. mars 2012

Markmið: Þessi tengslaráðstefna er ætluð þeim sem vilja skipuleggja lýðræðisverkefni eða fundi ungs fólks og þeirra sem starfa að æskulýðsmálum.
Hvar:  Varsjá, Póllandi 
Hvenær:  17. apríl - 22. apríl 2012 
Umsóknarfrestur:  4. mars 2012

Markmið: Að bæta gæði í samstarfsverkefnum milli þátttökulanda í ungmennaáætluninni og landa í Austur-Evrópu og Kákasus með áherslu á þjálfunar og samstarfsverkefni þeirra sem starfa með ungu fólki.
Hvar:  Crimea, Úkraínu 
Hvenær:  23. apríl - 29. apríl 2012 
Umsóknarfrestur:  11. mars 2012 


Markmið: Að leiðbeina þeim sem starfa með ungu fólki um svæðið kringum miðjarðarhafið með sérstöku tilliti til þeirra trúarbragða sem þar má finna, Kristni, Islam og Gyðingdómur. Markmiðið er að auka þekkingu og hvetja til samstarfsverkefna Evrópulanda og nágrannalöndum ESB við Miðjarðarhafið.
Hvar: Búlgaríu
Hvenær: 11.- 16. júní 2012 
Umsóknarfrestur: 13. apríl 2012 

Markmið: Að þjálfa þá sem vilja vinna verkefni með ungu fólki af ólíkum trúarbrögðum sérstaklega í fjölþjóðlegum verkefnum sem styrkt eru af Evrópu unga fólksins.
Hvar:  Lyon, Frakklandi
Hvenær:  8. maí - 13. maí 2012 
Umsóknarfrestur:  16. mars 2012

 

year: 2012 + month: 2
febrúar 2012
2012-2 = 2012-4
2012-2 = 2012-4
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-3
2012-2 = 2012-22|2012
2012-2 = 2012-22|2012
2012-2 = 2012-22|2012
2012-2 = 2012-22|2012
2012-2 = 2012-22|2012
2012-2 = 2012-1
2012-2 = 2011-11
2012-2 = 2011-11
2012-2 = 2011-10
2012-2 = 2011-10
2012-2 = 2011-9
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
2012-2 = 0001-1
vefrit_1


 

 

 youthportal01_typo eve_logo_en