Í ræktun lýðs og lands felst  m.a. að rækta það besta hjá hverjum einstaklingi, með þátttöku í margvíslegu starfi, meðal annars íþróttum og félagsstörfum.


Umhverfissjóður
Umhverfissjóður UMFÍ
 
Minningarsjóður Pálma Gíslasonar
 
Sjóðurinn heitir Umhverfissjóður UMFÍ, Minningarsjóður Pálma Gíslasonar
formaður 1979-1993.
 
1. grein
Sjóðurinn heitir Umhverfissjóður UMFÍ – Minningarsjóður Pálma Gíslasonar – formaður 1979-1993.
Heimili og varnarþing sjóðsins er í Reykjavík.
Sjóðurinn er vistaður hjá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ), Laugavegi 170, 105 Reykjavík, sem sér um að ávaxta sjóðinn á sem hagkvæmasta hátt.
 
2. grein
Tilgangur sjóðsins er að styrkja umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar.
 
3. grein
Stofnendur sjóðsins eru fjölskylda Pálma Gíslasonar ásamt ungmennafélagshreyfingunni og aðrir velunnarar.
 
4. grein
Sjóðsstjórn skal skipuð einum fulltrúa frá fjölskyldu Pálma Gíslasonar, formanni UMFÍ og þremur fulltrúum, skipuðum af stjórn UMFÍ.
 
5. grein
Úhlutunarreglur:
Umsóknir skulu berast á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finnast á heimasíðu UMFÍ og skilist til þjónustumiðstöðvar UMFÍ, Laugavegi 170, 105 Reykjavík.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. apríl ár hvert og tilkynnt skal um styrkveitingar fyrir 15. maí sama ár.
Skilyrði fyrir styrkjum er að styrkþegi sé félagi/félag í UMFÍ og verkefnið sé umhverfisverkefni. Auglýst skal eftir styrkþegum á heimasíðu UMFÍ, Skinfaxa og öðrum málgögnum UMFÍ. Ekki skal úthlutað meiru en sem nemur 90% af árlegri ávöxtun sjóðsins.
 
6. grein
Allir sem hljóta styrk úr sjóðnum skal skila skýrslu til sjóðsstjórnar um nýtingu styrksins, fyrirkomulag og árangur, fyrir lokagreiðslu, sem ekki sé meiri en 30% af styrknum.
 
7. grein
Sjóðsstjórn skal skila árlega skýrslu til stjórnar UMFÍ þar sem m.a. sé gerð grein fyrir styrkveitingum og fjárreiðum sjóðsins sem birtist í ársskýrslu UMFÍ.
 
 
8 grein
Skoðunarmenn UMFÍ eru jafnframt skoðunarmenn reikninga sjóðsins.
 
9. grein
Reglugerð þessi tekur þegar gildi. Breytingar á reglugerðinni þurfa að hljóta samþykki einfalds meirihluta á sambandsþingi UMFÍ.
 
 

Á döfinni
04. júlí 2013
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi
Samstarfsaðilar

Sambandsaðilar
Aðsendar greinar Heilsuhornið Verkefni UMFÍ Ýmislegt





 
 
 

 umfi
 umfi
 
 
  flott án fíknar
 
 
 Felix
 
umfi

 
umfi

umfi
© Allur réttur áskilinn 1998-2004, UMFÍ·Laugavegur 170 · 105 Reykjavík Sími 568 2929 · Bréfasími 568 2935 · Netfang: umfi hjá umfi.is