Fræðslusjóður UMFÍ
Reglugerð fyrir fræðslusjóð.
1. grein
Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Aðalsteins Sigmundssonar og er fræðslusjóður Ungmennafélags Íslands.
2. grein
Tilgangur sjóðsins er að auka menntun og þekkingu félaga innan ungmennafélagshreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi, með því að sækja námskeið sækja fundi og ráðstefnur
3. grein
Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur mönnum og einum til vara. Stjórn UMFÍ skipar stjórn sjóðsins milli þinga.
4. grein
Tekjur sjóðsins skulu vera ákveðinn hundraðshluti af lottótekjum sem koma til UMFÍ, skv. ákvörðun sambandsþings UMFÍ hverju sinni, frjáls framlög einstaklinga og félaga, og aðrar fjáraflanir sem henta þykja hverju sinni.
5. grein
Sjóðsstjórn ákveður styrkupphæð hverju sinni og er heimilt að veita úr sjóðnum öllu því fé sem í honum er á hverjum tíma.
6. grein
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa stuðning síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á styrk til sérstakra verkefna í fræðslumálum skv. 2. grein.
7. grein
Heimilt er að veita styrk skv. umsókn frá viðkomandi styrkþega, enda fylgi meðmæli viðkomandi félags og greinagerð um ástæðu fyrir umsókninni og hvaða árangurs megi vænta. Sérstaklega skal leitast við að styrkja þau málefni sem vænta má að leiði til nýjungar í starfi ungmennafélagshreyfingarinnar og til einstaklinga innan félaga þar sem lítil þekking er fyrir hendi á viðkomandi sviði.
8. grein
Allir sem hljóta styrk úr sjóðnum skulu skila skýrslu til sjóðsstjórnar um nýtingu styrksins, fyrirkomulag, helstu efnisatriði og árangur.
9. grein
Sjóðsstjórn skal skila skýrslu til stjórnar UMFÍ þar sem m.a. sé gerð grein fyrir styrkveitingum og fjárreiðum sjóðsins.
10. grein
Skoðunarmenn UMFÍ eru jafnframt skoðunarmenn reikninga sjóðsins.
11. grein
Reglugerð þessari verður aðeins breytt á sambandsþingi UMFÍ og þarf að hljóta 2/3 hluta greiddra atkvæða.
| Aðsendar greinar | Heilsuhornið | Verkefni UMFÍ | Ýmislegt | ||||||||||
![]() ![]() |
![]() ![]() |
|
![]() |
