Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis var haldinn í Egilshöllinni í gærkvöldi. Ragnar Þórir Guðgeirsson var endurkjörinn formaður en tvær breytingar urðu á stjórninni.
Stjórn Fjölnis er skipuð eftirtöldum einstaklingum. Ragnar Þórir Guðgeirsson, formaður, Jón Karl Ólafsson, Ingibjörg Óðinsdóttir, Sigurður H. Leifsson, Guðmundur Lúðvík Gunnarsson, Jón Þorbjörnsson, Bjarney Sigurðardóttir. Úr stjórninni gengu þau Snorri Snorrason og Sigrún Ragna Ólafsdóttir. Jón og Bjarney tóku sæti þeirra.
Í máli formannsins kom fram að starfsemi félagsins hefði verið umfangsmikil á síðasta ári og framtíðin væri björt. Jón Þorbjörnsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri í mörg ár, ákvað fyrir skömmu að hætta og hefur Málfríður Sigurhansdóttir verið ráðinn framkvæmdastjóri og mun hún hefja störf 1. apríl.
Málfríður hefur starfað lengi innan Fjölnis og var um tíma formaður sunddeildar félagsins. Málfríður hóf störf um síðustu áramót sem íþróttafulltrúi en lætur af því starfi þegar hún hefur störf sem framkvæmdastjóri.
Í lok fundarins var Guðlaugur Þór Guðlaugsson gerður að heiðursformanni Fjölnis en hann var í nokkur ár formaður félagsins. Við þetta tækifæri voru honum þökkuð góð störf fyrir félagwið í gegnum tíðina.
Örn Guðnason stjórnarmaður í Ungmennafélagi Íslands flutti ávarp á þinginu. Örn fór yfir starfsemi UMFÍ og þá þjónustu sem hreyfingin veitir sínum félagsmönnum.
Mynd: Ragnar Þórir Guðgeirsson formaður Fjölnis.
| Aðsendar greinar | Heilsuhornið | Verkefni UMFÍ | Ýmislegt | ||||||||||
![]() ![]() |
![]() ![]() |
|
![]() |
