Dagana 4.-5. Febrúar stóð Ungmennafélag Íslands fyrir ráðstefnu á Akureyri sem bar yfirskriftina Ungt fólk og lýðræði. Ráðstefnan var haldinn í samvinnu við Háskólann á Akureyri.
Að sögn Guðrúnar Snorradóttur, landsfulltrúa UMFÍ, gekk ráðstefnan mjög vel og var fjöldi þátttakenda mun meiri en búist hafi verið við en um 80 manns sótti ráðstefnuna.
Markmið ráðstefnunnar var að skapa umræðuvettvang fyrir fólk á aldrinum 13 – 25 ára sem er að stíga sín fyrstu skref sem fulltrúar í ungmennaráðum félagasamtaka og sveitarfélaga. Ráðstefnan var einnig opin öðrum áhugasömum um ungmennaráð og lýðræðislega þátttöku ungs fólks.
Á 43. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á Sauðárkróki í október 2003 var samþykkt að stofna ungmennaráð innan UMFÍ sem skipað sé fólki á aldrinum 15 – 25 ára. Þar segir: „Markmið ungmennaráðs verði m.a. að ungmenni fái markvisst aukna ábyrgð og tækifæri til að taka beinan þátt í ákvarðanatöku um mótun þess félags- og tómstundastarfs sem þau eru virk í og tengja skoðanir þeirra í auknu mæli inn í starf ungmennafélagshreyfingarinnar.“
Á 44. Sambandsþingi sem haldið var á Egilsstöðum í október 2005 fól stjórn UMFÍ í samvinnu við ungmennaráð að standa fyrir Landsþingi ungmenna frá öllum aðildarfélögum UMFÍ.
Í lögum nr. 70 um æskulýðsmál sem tóku gildi 5. apríl 2007 segir „Sveitarstjórnir hlutist til um að stofnuð séu ungmennaráð. Hlutverk ungmennaráða er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarstjórnir setja nánari reglur um hlutverk og val í ungmennaráð.“ Mörg sveitarfélög og félagasamtök hafa brugðist við og stofnað ungmennaráð.
Ráðstefnuna á Akureyri sátu fulltrúar ungmennaráða, umsjónarmenn þeirra auk annarra áhugasamra um lýðræðisþátttöku ungs fólks.
Áhugaverðir fyrirlestrar voru haldnir og eftir þá fóru fram fróðlegar og spennandi umræður. Guðrún segir að almenn ánægja hafa verið með ráðstefnuna og þátttakendurnir í sjöunda himni með þetta framtak. Umræðan um þennan málaflokk hefði svo sannarlega verið þörf.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður setti ráðstefnuna og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flutti ávarp. Erlendir gestir fluttu fyrirlestra á ráðstefnunni og má þar nefna Jean Luc Frast frá ISCA en fyrirlestur hans fjallaði um æskulýðsstarf í Evrópu.
Þá fjölluðu norskir fyrirlesarar um ungmennaráð í Noregi. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, og Hildur Inga Sveinsdóttir, fulltrúi í ungmennaráði Reykjavíkur, flutti einnig áhugaverð erindi.
Þá fjallaði Ágúst Þór Árnason um Ungt fólk og lýðræði og Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir um lýðræðislegt uppeldi.
Þá voru ræddar niðurstöður úr hópavinnu. Sýndur var hlutverkaleikur undir heitinu Ég og sameinuðu þjóðirnar við góðar undirtektir.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, ávarpaði ráðstefnuna og sleit síðan velheppnaðri ungmennaráðstefnu.
| Aðsendar greinar | Heilsuhornið | Verkefni UMFÍ | Ýmislegt | ||||||||||
![]() ![]() |
![]() ![]() |
|
![]() |
