Á laugardaginn kemur, þann 8. nóvember 2008 mun Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga halda upp á 90 ára afmæli sitt í Dalabúð kl. 14. Tilefnið er að 90 ár eru síðan Ungmennasamband Dalamanna(UMSD) var stofnað, fyrsta sambandsþing U. M. S. D. var haldið 24. maí 1918, og er UMSD fyrsta samband ungmennafélaga á því svæði sem nú er sambandssvæði U. D. N., sem er Austur- Barðastrandasýsla og Dalasýsla. Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga var stofnað 1936 og árið 1971 voru þessi tvö ungmennasambönd sameinuð undir sömu merkjum, og nú heitir sambandið, Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga(U. D. N.)
Veturinn 1917-1918 fór undirbúningur undir stofnun sambandsins fram og vantar nánari heimildir frá fundi í Laxárdal 10.des 1917 sem átti að vera stofnfundur , hvort hann var haldinn og ef svo var, hvað gerðist á honum. En ljóst er að ungmennafélagar í þeim 4 félögum sem stofnuðu U. M. S. D. létu frostaveturinn mikla ekki aftra sér við stofnun ungmennasambands.
Fróðlegt er að lesa lýsingar Geirs Sigurðssonar frá Skerðingsstöðum í bókinni “Frá morgni aldar” frá aðdraganda og fyrstu skrefum U. M. S. D. en þar segir m.a.
,,Sögustaðurinn Sælingsdalstunga í Hvammssveit á sér vinalegan stað í tungubroddi við ármót. Þar er grösug grund undir háu barði. Staður þessi ber nafnið PARADÍS. Sunnudagurinn í þrettándu viku sumars var þarna margt fólk saman komið, flest af því voru meðlimir í fjórum ungmennafélögum í Dalasýslu, sem höfðu nýlega stofnað Ungmenna samband Dalamanna. Þetta átti að vera “kynningarmót”.Það var engin bundin dagskrá fyrirhuguð í Paradís hinna ungu þennan dag. Fjör og frelsi fékk að ráða vorblæ og athöfnum. Þetta gerðist af sjálfu sér: Ávörp, söngur, þjóðdansar, hlaup,stökk, glímur, hlaupið í skarðið og dansað.
Það var eins og aukið víðsýni fylgdi fjölmennum æskulýðshópi heim að erfiðum þætti sumaranna að kvöldi þessa dags.”
Verið öll velkominn í Dalabúð Laugardaginn 8. nóvember.
Íslandi allt
Finnbogi Harðarson
Formaður U. D. N.
| Aðsendar greinar | Heilsuhornið | Verkefni UMFÍ | Ýmislegt | ||||||||||
![]() ![]() |
![]() ![]() |
|
![]() |
