Þrastaskógur í Grímsnesi austan við Ingólfsfjall er svæði UMFÍ til skógræktar sem var gefið samtökunum af Tryggva Gunnarssyni á 77 ára afmæli hans, þann 18. október 1911.  UMFÍ hefur unnið að ræktun skógarins í rúm 90 ár og í dag er Þrastaskógur ein af náttúruperlum suðurlands.  


Aðsendar greinar
28. október 2008

Ungmennavika NSU mikil upplifun

Ungmennavika NSU var haldin í Oksböl, litlum bæ rétt fyrir utan Esbjerg í Danmörku, dagana 26. júlí – 2. ágúst 2008. Við vorum fimm sem fórum frá Íslandi ásamt fararstjóranum okkar, Jörgen Nilsson. Á ungmennavikunni voru 47 ungmenni á aldrinum 15–25 ára sem komu saman frá ýmsum aðildarfélögum NSU.

Fyrsti dagurinn fór í það að kynnast öllum krökkunum. Það var farið í ýmsa leiki til að læra nöfnin ásamt því að við fórum í vatnsslag úti á túni og fleira. Við fórum til Ribe og fengum þar leiðsögn um bæinn með misgóðum leiðsögumönnum, einnig fórum við til Mandö þar sem við veiddum krabba og ýmis sjávardýr en íslensku strákarnir töldu sig hafa séð kolkrabba. Við lærðum um það hve menning getur verið ólík frá einu landi til annars og hversu erfitt það getur verið að koma inn í menningu þar sem maður veit ekki hverjar reglurnar eru, á mjög skemmtilegan hátt. Okkur var skipt í tvo hópa þar sem hver tók upp sína menningu og svo fékk maður að fara í heimsókn til hins hópsins.

National Danish Performance Team kom til okkar og var með workshop fyrir okkur, kenndu okkur dans og fimleika. Einnig sýndu þau okkur nokkra dansa sem eru hluti af sýningunni þeirra sem þau eru að fara að sýna um allan heiminn núna í vetur. Við fórum einnig á ströndina í sandkastalakeppni og flugdrekasmíði. Engum hópi tókst að láta flugdrekann sinn fljúga en efnið í drekann var ansi takmarkað, ruslapoki, prik og snæri. Einnig fórum við út í skóg þar sem við áttum að búa til fleka, klifra upp í tré og byggja brú á milli tveggja trjáa. Á hverju kvöldi var gert eitthvað skemmtilegt. Við syntum og fórum í „Hit med sangen“ (Það var lagið), kveiktum bál og gerðum margt fleira. Eitt kvöldið var næturleikur sem fór misvel í fólk. Þar þurftum við að leysa ýmsar þrautir og komast á leiðarenda í gegnum skóginn, með aðeins eina lukt á hvern hóp.

Leiðtogarnir voru búnir að koma sér fyrir á ýmsum stöðum og hræddu okkur á fjölbreyttan hátt, einn var búinn að „hengja sig“ upp í einu trénu á meðan annar var eins og frummaður. Ungmennavika NSU er upplifun. Hún er mjög góð lífsreynsla og við mælum með henni fyrir alla þá sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og kynnast nýju og skemmtilegu fólki. Maður æfist í Norðurlandatungumálum og verður öruggari og ófeimnari í samskiptum við annað fólk. Ungmennavikan snýst fyrst og fremst um að kynnast menningu Norðurlandanna og fólkinu á bak við hana.

Auður, Hekla Karen, Jón, Olga Þórunn og Ómar.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Á döfinni
04. júlí 2013
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi
Samstarfsaðilar

Sambandsaðilar
Aðsendar greinar Heilsuhornið Verkefni UMFÍ Ýmislegt





 
 
 

 umfi
 umfi
 
 
  flott án fíknar
 
 
 Felix
 
umfi

 
umfi

umfi
© Allur réttur áskilinn 1998-2004, UMFÍ·Laugavegur 170 · 105 Reykjavík Sími 568 2929 · Bréfasími 568 2935 · Netfang: umfi hjá umfi.is