Skinfaxi er tímarit UMFÍ og fjallar um íþróttir, útivist og menningu. Skinfaxi er boðberi góðra frétta úr starfi ungmennafélaga og héraðssambanda og skal bera út ,,sól og sumaryl"


Aðsendar greinar
28. október 2008

Frábært Unglingalandsmót

Ellefta Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands fór, eins og flestum er kunnugt, fram í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina. Keppendur voru rúmlega 1.200 talsins. Skemmtu þeir sér við íþróttakeppni á daginn og á kvöldin var haldið í risatjaldið þar sem hljómsveitir spiluðu við mikinn fögnuð.

Aldrei fyrr hafa keppendur á vegum HSK verið jafnmargir eða rúmlega 170. Margir þeirra gistu á tjaldsvæðinu en nokkrir keyrðu á milli Hveragerðis og Selfoss. Eins og á fyrri mótum varð ekki vart við ölvun eða óspektir en einhverjir unglingar vöktu heldur lengi og voru með pínulítil læti. En maður var nú sjálfur einu sinni ungur (fyrir alllöngu) og sennilega ekki mjög ólíkur unglingum dagsins í dag.

Krakkarnir voru til mikillar fyrirmyndar á íþróttavöllunum og það var gaman að afhenda verðlaun á frjálsíþróttavellinum því að margir HSKkrakkar hlutu þar verðlaun fyrir góðan árangur. Það er nú reyndar skoðun mín að mót sem þetta eigi ekki að snúast eingöngu um að vinna verðlaunapeninga heldur sé aðalatriðið að sem flestir taki þátt og hafi gaman. Ég veit vel að ekki eru allir sammála mér í þessu en það verður bara að hafa það. Keppnisfyrirkomulag í boltaíþróttum býður upp á það að einstaklingar geti skráð sig í önnur lið og keppt með þeim á mótinu.

Þannig geta þeir tekið þátt sem æfa fótbolta eða körfubolta en hafa ekki liðsfélaga sína með sér. Þannig hafa mínir krakkar spilað með ÍA, Fjölni og Keflavík svo að dæmi sé tekið. Allir eru boðnir velkomnir í hin mismunandi lið og krakkarnir kynnast vel á vellinum. Eins og áður sagði lauk mótinu á sunnudagskvöldinu með einni stærstu og flottustu flugeldasýningu sem ég hef séð. Kiwanisklúbburinn Ölver í Þorlákshöfn sá um hana og þar eru greinilega vanir menn á ferð. Áhorfendur héldu hvað eftir annað að sýningunni væri lokið og byrjuðu að klappa en þá bættist enn frekar í glæsilega flugeldasýningu.

Flestir fóru heim að því loknu og þeir síðustu fóru seinni part mánudags. Við sem vorum að ganga frá á tjaldsvæðinu sáum nánast ekkert rusl, öll umgengni var til mikillar fyrirmyndar. Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi mótsins og þá sérstaklega því góða fólki sem starfaði með mér í Unglingalandsmótsnefnd HSK. Þetta var einvalalið sem leysti öll þau verkefni sem leysa þurfti og þau voru mjög mörg og viðfangsmikil á svona stóru íþróttamóti.

Einnig vil ég óska Ölfusingum innilega til hamingju með mjög glæsileg íþróttamannvirki.

Sjáumst í Grundarfirði að ári.

Gísli Páll Pálsson, formaður HSK.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Á döfinni
04. júlí 2013
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi
Samstarfsaðilar

Sambandsaðilar
Aðsendar greinar Heilsuhornið Verkefni UMFÍ Ýmislegt





 
 
 

 umfi
 umfi
 
 
  flott án fíknar
 
 
 Felix
 
umfi

 
umfi

umfi
© Allur réttur áskilinn 1998-2004, UMFÍ·Laugavegur 170 · 105 Reykjavík Sími 568 2929 · Bréfasími 568 2935 · Netfang: umfi hjá umfi.is