Mótinu frestað til 2013
Stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins hefur skipað sjö manna Landsmótsnefnd vegna Landsmóts UMFÍ á Selfossi og hefur nefndin þegar fundað tvisvar sinnum.
Stjórn HSK skipaði Þóri Haraldsson sem formann nefndarinnar og aðrir sem HSK tilnefndi eru formaður HSK, gjaldkeri HSK og bæjarstjóri Árborgar, þau Gísli Páll Pálsson, Hansína Kristjánsdóttir og Ragnheiður Hergeirsdóttir. Þrír eru tilnefndir af stjórn UMFÍ, þau Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri UMFÍ og Örn Guðnason ritari UMFÍ og framkvæmdastjóri Umf. Selfoss.
Á fundi nefndarinnar sem haldinn var í síðustu viku var ákveðið að fresta mótinu til ársins 2013. Á fundinum kom fram að stjórn UMFÍ hafi samþykkt á fundi nýverið beiðni nefndarinnar að fresta mótinu um eitt ár. Ástæða frestuninnar er einkum sú að margir aðrir stórir íþróttaviðburðir verða þetta sama ár. Þar má nefna Landsmót hestamanna sem líklega verður haldið hér sunnanlands á svipuðum tíma og til stóð að halda landsmót ungmennnafélaganna. Á samráðsfundi UMFÍ, sem haldinn var á dögunum, voru þessi mál rædd og þar voru fundarmenn almennt þeirrar skoðunnar að framvegis ætti að halda Landsmót UMFÍ fjórða hvert ár. Nefnd er að störfum á vegum UMFÍ sem er að skoða framtíð landsmótanna og verða þessi mál nánar rædd á þingi samtakanna í haust.
Á fundi Landsmótsnefndarinnar í síðustu viku var ákveðið að halda Landsmótið á Selfossi 4. - 7. júlí árið 2013. Kynning á Landsmótinu á Selfossi mun formlega hefjast á Landsmótinu á Akureyri í sumar.
| Aðsendar greinar | Heilsuhornið | Verkefni UMFÍ | Ýmislegt | ||||||||||
![]() ![]() |
![]() ![]() |
|
![]() |
