
Helsti munur á miðlægum styrkjum ungmennaáætlunar ESB og hefðbundnum styrkjum sem Evrópa Unga Fólksins veitir er að sótt er um styrkina beint til framkvæmdaskrifstofunar í Brussel en ekki til skrifstofunnar hér á landi. Miðlægir styrkir eru ætlaðir til stærri fjölþjóðlegra verkefna og eru bæði gerðar meiri kröfur til umsækjenda ásamt því að hærri styrkupphæðir eru veittar.
Upplýsingar um miðlæga styrki á heimasíðu i framkvæmdaskrifstofunnar í Brussel
Þrátt fyrir að ekki sé sótt um beint til Evrópu unga fólksins á Íslandi hvetjum við ykkur til að nýta ykkur aðstoð okkar og sérþekkingu við undirbúining umsókna um miðlæga styrki.
Miðlægir styrkir eru tvennskonar:
Styrkir til fastra flokka - til þeirra teljast þeir flokkar fjallað er um í B-hluta handbókar EUF að undanskildum frumkvöðlaverkefnum. Árlega eru veittar um 10 milljón evrur til 270 verkefna í eftirfarandi flokkum, en umsóknarfrestur er 3. sinnum á ári.
Ungmennaskipti - Flokkur 1.1
Lýðræðisverkefni - Flokkur 1.2
Evrópsk sjálfboðaliðaþjónusta - Flokkur 2
Samstarf við nágrannalönd sambandsins - Flokkur 3.1
Þjálfun og samstarf aðila í ungmennastarfi - flokkur 4.3
Fundir ungs fólks og þeirra sem bera ábyrgð á ungmennastefnu - Flokkur 5.1
Sérköll eftir umsóknum - koma frá Brussel nokkrum sinnum á ári. Þá er auglýst með nokkurra mánaða fyrirvara eftir umsóknum í verkefni innan sérstakra flokka. Hámarks styrkur á hvert verkefni er í flestum flokkum 100.000 evrur.
Samstaf við lönd utan Evrópu - Flokkur 3.2
Styrkir við æskulýðssamtök sem eru virk í Evrópusamvinnu - Flokkur 4.1
Verkefni sem hvetja til nýsköpunar og gæða - Flokkur 4.4
Upplýsingastarfsemi fyrir ungmenni og aðila í ungmennastarfi - Flokkur 4.5
Samstarf - Partnerships - Flokkur 4.6