Ungmenni með takmarkaða möguleika
Þátttaka ungs fólks með takmarkaða möguleika
Eitt af mikilvægustu forgangsatriðum Evrópusambandsins er að öllu ungu fólki sé gert kleift að taka þátt í Evrópu unga fólksins; einnig ungu fólki sem hefur takmarkaða möguleika.
Ungt fólk með takmarkaða möguleika er skilgreint sem ungt fólk sem er verr á vegi statt en jafningjar þess, af einni eða fleiri ástæðum sem gerð er grein fyrir hér fyrir neðan. Sú skrá er þó engan veginn tæmandi. Við tilteknar aðstæður koma þessar aðstæður eða hindranir í veg fyrir að ungt fólk hafi aðgang að formlegri eða óformlegri menntun, möguleika á þátttöku í erlendum samskiptum, almennri þátttöku í samfélaginu og persónulegri uppbyggingu.
Félagslegar hindranir:
Ungt fólk sem sætir mismunun vegna kynferðis, þjóðernis, trúar, kynhneigðar, fötlunar o.s.frv. Ungt fólk sem býr yfir takmarkaðri félagslegri færni, ófélagslegri eða áhættusamri kynferðishegðun. Ungt fólk sem býr við ótryggar aðstæður, s.s (fyrrum) afbrotamenn, (óvirkir) eiturlyfja- eða áfengissjúklingar, ungir og/eða einstæðir foreldrar, munaðarleysingjar og ungt fólk frá heimilum í upplausn.
Fjárhagslegar hindranir:
Ungt fólk sem býr við léleg lífskjör, litlar tekjur, er háð félagslega kerfinu, hefur verið lengi atvinnulaust eða býr við fátækt, ungt heimilislaust fólk og ungt fólk sem er skuldum vafið eða á í fjárhagserfiðleikum.
Fötlun:
Ungt fólk með andlega (greind, vitsmunir) eða líkamlega fötlun, skerta skynjun eða aðra fötlun.
Námsörðugleikar:
ungt fólk sem á erfitt með að læra, fólk sem hætt hefur snemma í skóla og
brottfallsnemendur:
Fólk með litla menntun eða ungt fólk sem gengið hefur illa í skóla.
Menningarmunur:
Ungir innflytjendur, flóttamenn eða afkomendur slíks fólks. Ungt fólk sem tilheyrir þjóðernis- eða þjóðflokkaminnihluta. Ungt fólk sem þarf að aðlaga sig tungumáli eða á við vandamál vegna menningarlegrar útilokunar að stríða.
Heilsufarsleg vandamál:
Ungt fólk sem á við viðvarandi heilsubrest að stríða, alvarleg veikindi eða geðsjúkdóma. Ungt fólk með andlega skerta heilsu.
Landfræðilegar hindranir:
Ungt fólk frá afskekktum svæðum eða úr dreifbýli. Ungt fólk sem býr á litlum eyjum eða jaðarsvæðum. Ungt fólk af vandamálasvæðum í þéttbýli eða ungt fólk sem býr á svæðum þar sem þjónusta er í lágmarki (takmarkaðar almenningssamgöngur, bágbornar aðstæður af einhverju tagi, yfirgefin þorp).
Ungmennahópar og samtök eiga að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að ákveðnir markhópar séu útilokaðir. Samt sem áður getur það gerst að hætta á útilokun sé mismunandi eftir svæðum, þ.e. að ungmennum geti fundist að við tilteknar aðstæður séu þau verr sett en jafningjar þeirra á sumum stöðum, en ekki öðrum.
Evrópa unga fólksins er áætlun fyrir alla og leitast skal við að bjóða ungu fólki með sérþarfir að taka þátt.
Fyrir utan að vera opin öllum er markmið Evrópu unga fólksins að vera tæki til að auka félagslegan samruna, virka þátttöku í samfélaginu, atvinnumöguleika ungs fólks með lakari tækifæri og að leggja sitt að mörkum til að stuðla að sem almennustu félagslegu jafnræði.
Gerð hefur verið áætlun fyrir Evrópu unga fólksins um það hvernig sem flestir geti tekið þátt (Inclusion Strategy), en unnið er að gerð sameiginlegrar rammaáætlunar sem styður við viðleitni og aðgerðir Framkvæmdastjórnarinnar, Evrópusambandsríkjanna, landsskrifstofa, framkvæmdaskrifstofa og annarra samtaka sem öll vinna að því að gera þátttöku allra að forgangsatriði.