
Ungmennaskipti við nágrannalönd í nágrenninu eru verkefni þar sem hópar ungs fólks frá tveimur eða fleiri löndum koma saman og hafa tækifæri til að ræða og kynna sér ýmis málefni og læra um leið um menningu og siði í löndum hvers annars. Ungmennaskipti byggja á samstarfi tveggja eða fleiri verkefnisstjóra frá tveimur eða fleiri löndum. Þegar um er að ræða ungmennaskipti við nágrannalönd í nágrenninu í flokki 3.1 þurfa samstarfsaðilar í verkefni að vera bæði frá þátttökulöndum áætlunarinnar og nágrannalöndum Evrópusambandsins.
Listi yfir þátttökulönd áætlunarinnar og nágrannalönd ESB
Athugið að eitt Evrópusambandsland þarf að vera þátttakandi í hverju verkefni. Því eru tvíþjóða ungmennaskipti með nágrannalöndum ESB ekki möguleg fyrir íslenska hópa.
Það fer eftir fjölda landa, sem taka þátt, hvort ungmennaskiptin séu tvíþjóða, þríþjóða eða fjölþjóða.
Ungmennaskipti innan sama verkefnis geta verið í gangi á mörgum stöðum á sama tíma, þ.e. allir þátttakendur geta verið í heimsóknum í fleiri en einu þátttökulandi á sama tíma.
Ungmennaskiptaverkefni skiptist í þrjá hluta:
Kenningar og aðferðir óformlegs náms eru hafðar að leiðarljósi á öllum stigum verkefnisins.