Hvað eru ungmennaskipti?
- Hópar af ungu fólki frá tveimur eða fleirum Evrópuþjóðum hittast í þeim tilgangi að læra um þjóð og menningu landanna.
- Þátttökulönd eru aðilar að ungmennaáætlun ESB. (Einnig er hægt að skipuleggja ungmennaskipti með nágrannalöndum ESB)
- Skipuleggjendur geta verið löglega skipuð samtök/stofnanir eða óformlegir hópar ungs fólks.
- Þátttakendur eru á aldrinum 13 – 25 ára (hluti hóps getur verið 25 - 30ára).
- Fjöldi þátttakenda eru að lágmarki 16 þátttakendur og ekki fleiri en 60.
- Í tvíþjóða samstarfi verður hver hópur að hafa minnst 8 þátttakendur.
- Í þríþjóða samstarfi verður hver hópur að hafa minnst 6 þátttakendur.
- Í fjölþjóða samstarfi verður hver hópur að hafa minnst 4 þátttakendur.
- A.m.k. einn hópstjóri verður að fylgja hverjum hópi.
- Ungmennaskiptin fara fram í einu þátttökulandi.
- Ungmennaskiptaverkefni eru unnin í þremur hlutum: undirbúningur, framkvæmd, mat.
- Lengd verkefnis (undirbúningur, framkvæmd og mat) 15 mánuðir í mesta lagi.
- Lengd ferðarinnar er 6-21 dagur að undanskildum ferðadögum.
- Nákvæm dagskrá verður að fylgja hverri umsókn.
Komið hefur verið á fót miðlægum gagnagrunni til að finna samstarfsaðila í ungmennaskiptum. Þar er hægt að leita eftir hópum ásamt því að skrá inn sinn eigin hóp. Nánari upplýsingar hér
Markmið
Að læra um menningu annarra Evrópuþjóða.
Að hvetja til þeirrar hugsunar að vera Evrópubúi en ekki eingöngu Íslendingur, Frakki eða Pólverji o.s.frv.
Í ungmennaskiptum er lögð mikil áhersla á óformlegt nám. Með óformlegu námi er átt við að skipulagður rammi sé mótaður í dagskrá ungmennaskiptanna sem miðar að því að ná fram markmiðum verkefnisins með óformelgum námsaðferðum. Þær aðferðir ganga út frá því að virkja ungmennin í verkefninu til beinnar þátttöku ásamt því að meta síðan það sem þau hafa lært. Dæmi um óformelgar námsaðferðir eru t.d. hópeflisleikir, hlutverkaleikir, ratleikir o.m.fl.
Í
Toolboxi á heimasíðu SALTO sem er stuðningsnet Youth in Action áætlunarinanr má finna Toolbox þar sem hægt er að skoða fjölda tækja sem hægt er að nota í óformlegu námi.
Við mælum með því að umsækjendur nýti sér þann möguleika að fara í undirbúningsheimsókn áður en að ungmennaskiptin fara fram, sérstaklega ef að um nýtt samstarf er að ræða. Sótt er um undirbúningsheimsókn samhliða umsókn um styrk fyrir ungmennaskiptum og er veittur fullur ferðastyrkur fyrir þá heimsókn. Undirbúningsheimsókn getur verið í mesta lagi 2 dagar að undanskildum ferðadögum. Í undirbúningsheimsókn mega mest vera tveir þátttakendur frá hverju landi. Ef að þátttakendur eru tveir þá þarf annar þeirra að vera fulltrúi ungmennanna sem taka þátt í ungmennaskiptunum og hinn að vera hópstjóri sem taka mun þátt í ungmennaskiptunum ásamt hópnum. Nákvæm dagskrá fyrir undirbúningsheimsókn verður að fylgja með umsókn.