English

Þjálfun og samstarf með nágrannalöndum ESB

Sömu reglurnar gilda um þjálfunar og samstarfsverkefni með nágrannalöndum ESB og í venjulegum þjálfunar og samstarfverkefnum. Sækja þarf um styrk í flokki 3.1. þegar nágrannalönd ESB taka þátt í verkefninu.

Listi yfir þátttökulönd áæltunarinnar og nágrannalönd ESB

Athugið að eitt Evrópusambandsland þarf að vera þátttakandi í hverju verkenfni. Því eru tvíþjóða þjálfunar og samstarfsverkefni með nágrannalöndum ESB ekki möguleg fyrir íslenska hópa.

Þjálfunar og samstarfsverkefni geta verið tvenns konar:

  • Verkefni sem ýta undir mannaskipti, samstarf og þjálfun í starfi með ungmennum. Tilgangurinn með slíkum verkefnum er að hjálpa verkefnisstjórum við að byggja upp færni og nýjungar og að gefa þeim kost á að deila reynslu sinni, kunnáttu og góðum starfsaðferðum í æskulýðsstarfi.
  • Verkefni sem leitt geta af sér þróun á nýjum verkefnum undir áætluninni Evrópa unga fólksins. Tilgangurinn með þeim verkefnum er að veita hugsanlegum verkefnisstjórum aðstoð við að undirbúa og þróa ný verkefni undir áætluninni. Áhersla er lögð á að veita stuðning og miðla þekkingu við þróun verkefnanna, aðstoða við leit að samstarfstarfsaðilum og benda á tæki og aðferðir til að bæta gæði verkefnanna.

Þjálfun og samstarf skiptist í mismunandi undirflokkaa efitr lengd verkefna, fjölda þátttakenda og eðli verkefna

  • Lærlingsstarf (Job shadowing) – Stutt dvöl hjá samstarfssamtökum í öðru landi með það að markmiði að skiptast á góðum hugmyndum, öðlast þekkingu og hæfni og/eða byggja upp langtímasamstarf með því að fylgjast með og taka þátt í starfi hvers annars.
  • Könnunarheimsóknir – Stuttur fundur með hugsanlegum samstarfsaðilum til að kanna og/eða undirbúa hugsanlegt fjölþjóðaverkefni. Markmiðið með könnunarheimsóknum er að bæta og þróa samstarf sem þegar er til og/eða til að undirbúa verkefni sem sækja á um stuðning við til Evrópu unga fólksins.
  • Matsfundir – fundir sem skipulagðir eru með samstarfsaðilum með það að markmiði að meta fyrri fundi, námskeið eða þjálfunarnámskeið. Slíkir fundir hjálpa samstarfsaðilum við að meta og ræða hugsanlega eftirfylgni eftir að verkefni þeirra er lokið.
  • Námsheimsókn - Stutt, skipulögð námsheimsókn þar sem hægt er að kynna sér æskulýðsstarf og/eða stefnumótun í æskulýðsstarfi í heimsóknarlandinu. Námsheimsóknirnar eru skipulagðar í kringum ákveðið þema og meðan á þeim stendur eru haldnir fundir og farið í heimsóknir til samtaka í heimsóknarlandinu og til að kynna sér ýmiskonar verkefni.
  • Uppbygging tengslaneta – Viðburður sem er skipulagður með það að markmiði að auðvelda þátttakendum að finna sér samstarfsaðila í fjölþjóðlegt samstarf og/eða þróun á verkefnum. Á tengslaráðstefnum koma saman hugsanlegir samstarfsaðilar og þátttakan auðveldar þeim að þróa nýjar verkefnishugmyndir á fyrirfram ákveðnu sviði og/eða flokki í Evrópu unga fólksins.
  • Málstofa – Viðburður sem byggir á fræðilegu innleggi og er skipulagður í kringum ákveðið þema eða þemu sem snerta æskulýðsvettvanginn. Markmiðið er að búa til vettvang fyrir umræður og skiptast á góðum hugmyndum.
  • Námskeið - Námskeið með ákveðnum lærdómsmarkmiðum þar sem tekin eru fyrir sérstök efni sem miða að því að auka hæfni, þekkingu, færni og viðhorf þátttakenda. Þjálfunarnámskeiðin byggja upp færni þátttakenda til að sinna æskulýðsstarfi og/eða sinna verkefnum í Evrópu unga fólksins.
  • Tengslanet – Sambland eða röð verkefna sem miða að því að gera ný samstarfsnet eða styrkja og stækka samstarfsnet sem fyrir eru í Evrópu unga fólksins.

Nánari upplýsingar um fjölda þátttakenda, lengd verkefnis, fjölda verkefnastjóra o.sv.fr. má finna í B hluta Handbókar EUF í kaflanum um flokk 4.3. 


year: 2012 + month: 5
maí 2012
2012-5 = 2012-7
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-2
2012-5 = 2012-1
2012-5 = 2011-11
2012-5 = 2011-11
2012-5 = 2011-10
2012-5 = 2011-10
2012-5 = 2011-9
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
vefrit_3


 

 youthportal01_typo eve_logo_en  eu_flag_yia_en-01litid