eurodesk_banner_a_heimasidu

Styrkir
18.5 2012

Hvar er hægt að sækja um styrki fyrir ungt fólk?

Það eru nokkrar skrifstofur í Reykjavík sem sjá um evrópskar og norrænar styrkjaáætlanir. Hér fyrir neðan finnur þú upplýsingar um þær og hvernig styrkir eru í boði. 

 


Eurodesk - evrópsk upplýsingaveita fyrir ungt fólk

Hér eru allar evrópsku styrkjaáætlanirnar sem eru í boði fyrir ungt fólk. Veldu þema og sjáðu hvað er í boði. Einnig er sniðugt að skoða undirsíðuna "Deadline Reminder" sem sýnir þér alla umsóknarfresti í þessum styrkjaáætlunum næstu þrjá mánuði.
 
 
 

Evrópa unga fólksins - ungmennaáætlun

Evrópa unga fólksins er styrkjaáætlun fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára og samtökum sem starfa með ungmennum.

www.euf.is


Leonardo da Vinci - starfsmenntun

Leonardo áætlunin styður einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun. Jafnframt styður áætlunin við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi og greiðir fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun.

www.leonardo.is

 


Erasmus - háskólastigið
Erasmus, háskólaáætlun Evrópusambandsins, er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu. Áætlunin styrkir ýmis konar verkefni, svo sem stúdenta og kennaraskipti, námsferðir starfsfólks háskóla og fólks í atvinnulífinu, sameiginlegt námskeiðahald, og fleira.
 
 

Comenius - fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastigið
Comenius styrkir evrópsk samstarfsverkefni skóla, nemendaskipti, endurmenntun kennara, starfsþjálfun kennaranema og námsefnisgerð.
  • Evrópskt skólasamstarf
  • Undirbúningsheimsóknir
  • Gagnkvæm nemendaskipti
  • Endurmenntun kennara
  • Evrópskir aðstoðarkennarar
  • Þróun námskeiða og námsefnisgerðar
  • Styttri námsþjálfun
  • Svæðasamstarf
  • Nemendaskipti
  • Comenius net


Grundtvig - fullorðinsfræðsla

Grundtvig styrkir evrópsk samstarfsverkefni, endurmenntun, vinnustofur og net.

  • Samstarf a.m.k. 3ja fullorðinsfræðslustofnana frá jafnmörgum Evrópulöndum
  • Endurmenntun og námsferðir
  • Sjálfboðaverkefni fyrir 50 ára og eldri
  • Grundtvig vinnustofur fyrir nemendur í fullorðinsfræðslu
  • Grundtvig net
  • Þróun námsefnis og námskeiða
  • Undirbúningsstyrkir til að koma af stað verkefnum. Tengslaráðstefnur eða fundir.

http://grundtvig.is/

 



Menningaráætlun
Menningaráætlun Evrópusambandsins veitir styrki til verkefna í öllum listgreinum og á sviði menningararfleifðar auk þess að styrkja starfsemi evrópskra tengslaneta og menningarstofnana.
 
 
 

Nordplus

Hér er að finna upplýsingar um styrki í Menntaáætlun Nordplus og Norrænu tungumála- og menningaráætluninni.

 


Norræna húsið

Hér finnur þú upplýsingar um styrki vegna menningarmála á Norðurlöndunum.

 


Lýðháskólar á Norðurlöndum
Norræna félagið veitir styrki til íslenskra nemenda sem stunda nám í Norrænum lýðháskólum.
 
 

Handbók um styrki
Í Handbók um styrki er að finna ýmsa íslenska og erlenda styrktarsjóði til náms og rannsókna erlendis og hér á landi. Bókin er unnin af starfsmönnum Alþjóðaskrifstofunnar.
Athugið að undir "Ísland" eru fjölmargir íslenskir styrktarsjóðir, sem margir nýtast til náms erlendis.
 
 
 



Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is