eurodesk_banner_a_heimasidu

Óska eftir samstarfsaðilum
4.2 2012

Flest verkefni sem styrkt eru af Evrópu unga fólksins verða að vera framkvæmdar í samstarf tveggja eða fleiri þjóða. Það eru aðeins flokkur 1.2 (frumkvæðisverkefni) og flokkur 5.1 (fundir ungs fólks og þeirra sem bera ábyrgð á ungmennastarfi) sem geta verið aðeins innanlands, en slík verkefni geta að sjálfsögðu einnig verið alþjóleg. Það er því mikilvægt að finna sér samstarfsaðila erlendis sem er samansettur af svipuðum hóp (fjöldi, aldur) og hefur svipaðar áherslur og áhuga.

Besta leiðin til að finna samstarfsaðila er að skrá ykkar samtök og/eða hóp inn í OTLAS gagnagrunninn.

       www.Otlas.eu 

Oltas er samevrópskur gagnagrunnur samstaka sem starfa með ungu fólki og eru að leita að samstarfsaðilum. Honum er haldið úti af SALTO stuðningsskrifstofu Evrópu unga fólksins og er aðal tækið til að leita að samstarfsaðilum í verkefni með öðrum æskulýðssamtökum. Inn í Oltas getur þú skoðað áhugasöm samtök og hópa ungs fólks og séð verkefnahugmyndir þeirra.  Þú getur einnig sett inn lýsingu á þínum samtökum eða hóp og sett fram hugmyndir um hvernig verkefni þú vilt finna samstarfsaðila fyrir. Við mælum með að allir sem hafa áhuga á að vinna fjölþjóðleg verkefni með hópum í Evrópu skrái sig inn í Otlas. Það kostar ekki neitt að vera með!

 

Þið getið líka sent okkur ósk um samstarfsaðila.

Ef þið eruð með hugmynd að verkefni en vantar samstarfshóp erlendis fyllið þið einfaldlega út eyðublað um ósk eftir samstarfsaðila og sendið til okkar á euf hjá euf.is

 

Við tökum á móti ósk ykkar og sendum hana á viðeignadi aðila til reyna að koma ykkur í samband við rétta samstarfsaðilan.

 

* Gott er að hafa lýsingu á verkefninu sem þið hafið í huga frekar opna svo að samstarfshópar geti komið til móts við ykkur og mótað með ykkur verkefnið.    



Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is