
Hér gefur að líta hópa í Evrópu sem eru að leita eftir samstarfi við hópa á Íslandi. Ef þið sjáið hóp sem þið viljið eiga í samstarfi við ekki hika við að senda póst á tengiliðinn sem gefinn er upp til að koma á samskiptum og móta verkefni með hópnum.
En best er að skoða OTLAS gagnagrunninn ef þið viljið finna samstarfsaðila í ykkar fjölþjóðlega verkefni.
www.Otlas.eu Oltas er samevrópskur gagnagrunnur samstaka sem starfa með ungu fólki og eru að leita að samstarfsaðilum. Honum er haldið úti af SALTO stuðningsskrifstofu Evrópu unga fólksins og er aðal tækið til að leita að samstarfsaðilum í verkefni með öðrum æskulýðssamtökum. Inn í Oltas getur þú skoðað áhugasöm samtök og hópa ungs fólks og séð verkefnahugmyndir þeirra. Þú getur einnig sett inn lýsingu á þínum samtökum eða hóp og sett fram hugmyndir um hvernig verkefni þú vilt finna samstarfsaðila fyrir. Við mælum með að allir sem hafa áhuga á að vinna fjölþjóðleg verkefni með hópum í Evrópu skrái sig inn í Otlas. Það kostar ekki neitt að vera með!
Þjálfun og samstarf - Flokkur 4.3
Samtök frá Sikiley við Ítalíu eru að leita eftir samstarfsaðila til að taka þátt í og móta málstofu um fíkniefnaneyslu ungs fólks og forvarnir - Skoða nánar
Ungmennaskipti - Flokkur 1.1
Hópur 15 ungmenna á aldrinum 15-17 ára frá Madríd á Spáni vilja taka á móti hóp í tvíþjóða ungmennaskiptaverkefni - Skoða nánar
Hópur 17 ungmenna á aldrinum 15-18 ára leitar vill taka á móti sambærilegum hópi af ungu fólki og vinna verkefni tengt listum og menningu. Hópurinn er frá Málaga á Spáni - Skoða nánar
Samtökin Big families frá Eistalandi eru að leita eftir samstarfsaðilum fyrir hóp 10 ungmenna á alrdinum 13-16 ára. Samtökin samanstanda af 100 fjölskyldum með fjögur eða fleiri börn innan fjölskyldunnar og eru að leita að samstarfsaðilum sem eru í svipuðum sporum. Hópurinn vill fá svar fyrir lok mars - Skoða nánar
Hópur 8 16 ára drengja úr dreifbýli í Frakklandi eru að leita eftir samstarfsaðila í tvíþjóða ungmennaskipti sem eiga að fara fram næsta vetur eða sumarið 2012. Þema verkefnisins á að tengjast umhverfismálum, menningu og íþróttum - skoða nánar
Hópur 15 ungmenna á aldrinum 17-25 ára frá Ítalíu vilja skipuleggja tvíþjóða ungmennaskipti og vantar samstarfsaðila - skoða nánar
Hópur 15-20 ungmenna á aldrinum 14-18 ára frá Frakklandi eru að leita eftir samstarfsaðilum í tví- eða þríþjóða ungmennaskipti. Þema ungmennaskiptanna á að vera Íþróttir, útivist og umhverfismál - Skoða nánar
Frjáls félagasamtök frá Eistlandi sem starfa með ungu fólki í aldrinum 12-21 árs eru að leita eftir samstarfsaðilum fyrir verkefni tengt menningu, kvikmyndum og listum - Skoða nánar
Hópur 15-20 ungmenna á aldrinum 14-18 ára frá Frakklandi eru að leita eftir samstarfsaðilum í tví- eða þríþjóða ungmennaskipti. Þema ungmennaskiptanna á að vera Íþróttir, útivist og umhverfismál - Skoða nánar
Hópur frá Ítalíu leitar eftir samstarfshópi ungmenna á aldrinum 16-26 ára í þríþjóða ungmennaskipti. - Skoða nánar
Hópur 10 ungmenna á aldrinum 18-26 ára frá Ítalíu leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóða ungmennaskiptum. - Skoða nánar
Hópur frá Quistreham í Frakklandi vill taka á móti hópi ungmenna á aldrinum 15-17 ára í fjölþjóðleg ungmennaskipti. - Skoða nánar
Hópur 10 ungmenna á aldrinum 16-25 ára frá Frakklandi leitar eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti með þemum tengdum íþróttum, menningu, listum og tónlist. - Skoða nánar
Hópur 29 skáta á aldrinum 13-17 ára frá Belgíu leitar eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti. Hópurinn hefur áhuga á að koma til Íslands og vinna að verkefni í tengslum við náttúru, menningu og útivist. - Skoða nánar
Hópur 8 ungmenna á aldrinum 14-18 ára frá Belgíu leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóða ungmennaskipti. Þema verkefnisins á að vera í kringum leikhús, tónlist, ljóð o.fl. hugmyndin er að setja upp leiksýningu. - Skoða nánar
Hópur frá Madríd á Spáni vill taka á móti hóp í fjölþjóða ungmennaskiptum. - Skoða nánar
Hópur frá Valencia á Spáni vill taka á móti hóp í tvíþjóða ungmennaskiptum. Hópurinn samanstendur af 16 ungmennum sem vilja búa til verkefni í tengslum við listir og menningu. - Skoða nánar
Hópur frá Valderrobres á Spáni vill senda hóp í tvíþjóða ungmennaskiptum. Hópurinn samanstendur af 15 stúlkum á aldrinum 15-17 ára. - Skoða nánar
Hópur frá Majadas á Spáni vill taka á móti hópi í tvíþjóða ungmennaskiptum. Hópurinn samanstendur af 15 ungmennum á aldrinum 15-25 ára. Þema verkefnisins á að tengjast umhverfismálum, íþróttum og frístundum. - Skoða nánar
Íþrótta- og menningar samtök frá Franska Gvæjana í í Suður-Ameríku eru að leita eftir samstarfsaðilum í verkefni í kringum þemun heilsufar og vernd náttúrunnar með íþróttum. Þeir hyggjast sækja um styrk 1. febrúar og hópurinn samanstendur af ungu fólki á aldrinum 18-24 ára - Skoða nánar
Hópur 8 ungmenna á aldrinum 16-19 ára frá Dyflinn Írlandi eru að leita að samstarfsaðilum í ungmennaskipti sem fara eiga fram í Maí 2011 - Skoða nánar
Hópur 10 ungmenna á aldrinum 13-16 ára úr skóla í Póllandi leita samstarfs. Verkefnið á að tengjast fjölmiðlun. - Skoða nánar
Hópur 15 ungmenna á aldrinum 15-20 ára frá Pelplin í Póllandi leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Þema verkefnisins er listir, tónlist og leiklist. - Skoða nánar
Hópur ungmenna frá Frakklandi á aldrinum 16-20 sem býr við félagslega erfiðar aðstæður vill sækja heim sambærilegan hóp - Skoða nánar
Hópur frá Belgíu vill taka á móti 6 ungmennum á aldrinum 15-20 ára í mjög spennandi Tónlistarverkefni þar sem hópar frá 5 löndum munu vinna saman - Skoða nánar
Hópur frá Tékklandi leitar eftir 5 manna hóp íslenskra ungmenna til að taka þátt í fjölþjóðlegu ungmennaskiptaverkefni. Skoða nánar
Hópur frá skóla fyrir hreyfihömluð ungmenna í Tékklandi leitar eftir samstarfi við sambærilegan hóp - Skoða nánar
Hópur 20 ungmenna á aldrinum 18-30 ára frá Andalúsíu á Spáni vilja taka á móti hópum í fjölþjóðlegt verkefni tengt íþróttum og útivist - Skoða nánar
Hópur 6 ungmenna á aldrinum 13-17 ára frá Elche á Spáni leitar eftir samstarfsaðila til að vinna verkefni tengt menningu og listum - Skoða nánar
Hópur 5 ungmenna á aldrinum 18-25 ára frá Bellavista í Sevilla á Spáni leitar eftir að taka á móti samstarfsaðilum í fjölþjóðlegt verkefni tengt menningu og listum - Skoða nánar
Hópur 10 ungmenna á aldrinum 15-17 ára leitar eftir að taka á móti sambærilegum hóp í íþróttatengt verkefni. Hópurinn er Marinaleda í Sevilla á Spáni - Skoða nánar
Hópur 30 ungmenna á aldrinum 18-25 ára frá Vitoria-gasteiz á Spáni óskar eftir samstarfsaðila - skoða nánar
Hópurinn Nowa Fala frá Litháen er að leita eftir samstarfi við hóp ungs fólks á aldrinum 15-30 ára - Skoða nánar
Ítalskur hópur vill taka á móti hópum af 4-6 ungmennum á aldrinum 15-20 ára í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Þema verkefnisins er handverk eftir fornum ítölskum hefðum ásamt goðafræðilegri sögu, hópurinn ætlar að sækja um 1.júní 2010 - Skoða nánar
Hópur ungmenna frá Granada á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Þau vilja kynnast týpiskri tónlist og dönsum frá löndum samstarfaðila sinna - Skoða nánar
Hópurinn Aventureros frá Madríd á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum í fjölþjóðleg ungmennaskipti. Ungmennaskiptin eiga að fara fram á Spáni og á hver hópur að samanstanda af um 12 þátttakendum á aldrinum 18-30 ára - Skoða nánar
Hópur ungmenna á aldrnum 18-30 ára frá Andalúsíu á Spáni leitar eftir samstarfsaðilum í tvíþjóða ungmennaskipti. Hópurinn vill sækja samstarfshóp sinn heim og vinna verkefni í tengslum við uppbyggingu dreifbýlis, landbúnað og æskulýðsmál - Skoða nánar
Hópur 17 ungmenna á aldrinum 13-17 ára frá Club de Lectura Comelibros í Andalúsíu á Spáni leitar eftir að taka á móti svipuðum hóp í tvíþjóða ungmennaskipti með þemanu listir og menning - Skoða nánar
