
Ef upp koma einhver vandamál í leit að samstarfsaðilum hikið ekki við að hafa samband við okkur hjá Evrópu unga fólksins.
www.Otlas.eu Oltas er samevrópskur gagnagrunnur samstaka sem starfa með ungu fólki og eru að leita að samstarfsaðilum. Honum er haldið úti af SALTO stuðningsskrifstofu Evrópu unga fólksins og er aðal tækið til að leita að samstarfsaðilum í verkefni með öðrum æskulýðssamtökum. Inn í Oltas getur þú skoðað áhugasöm samtök og hópa ungs fólks og séð verkefnahugmyndir þeirra. Þú getur einnig sett inn lýsingu á þínum samtökum eða hóp og sett fram hugmyndir um hvernig verkefni þú vilt finna samstarfsaðila fyrir. Við mælum með að allir sem hafa áhuga á að vinna fjölþjóðleg verkefni með hópum í Evrópu skrái sig inn í Otlas. Það kostar ekki neitt að vera með!
Aðrir gagnabankar
Youth for Europe
Alþjóðlegur gagnabanki þar sem hægt er að fletta upp bæði samtökum og verkefnum eftir löndum.
Fjölþjóðlegur "samtaka-banki"
Hér er hægt að finna fjölda samtaka í Evrópu og nágrannalöndunum og skrá ykkar samstök ef þið eruð í leit að samstarfsaðilum.
Partner Search Forum
Öflugur og virkur vefur þar sem hægt er að finna fjölda samtaka sem vantar samstarfsaðila í áhugaverð verkefni og auðvelt er að setja inn sín eigin verkefni fyrir aðra til að sjá.
Euromed Platform
Hér er finna lista yfir fjölda meira en 2000 samtök í Evrópu og á meðal samstarfslanda við miðjarðarhafið (Marakó, Líbanon, Palestína o.fl). Hægt er að fletta samtökum upp eftir löndum og áherslusviðum samtakanna.
Youth Networks
Þetta er síða þar sem samtök og einstaklingar geta skráð sig inn ef þau vilja taka þátt í sjálfboðaliðaverkefnum. Skráning samtaka tekur nokkra daga, en að því loknu er veittur aðgangur að gagnagrunn með fjölda verkefna og samtaka. Einstaklingar sem hafa áhuga á sjálfboðastarfi þurfa að skrá sig í gegnum sendisamtök sem finna má neðst á síðunni.
Salto - Find Partners
Hér er hægt að finna nokkur verkefni í flokki 1.2 (frumkvöðlaverkefni) og flokki 1.3 (lýðræðisverkefni) sem eru í leit að samstarfshópum.
Þýskur gagnabanki
Hér getið þið bæði leitað meðal verkefna og sett ykkar eigið verkefni inn.
Spænskur gagnabanki
Hér er hægt að fletta upp eftir löndum og þemum meðal hópa í samstarfsaðila leit.
Tyrkneskur gagnabanki
Langar ykkur að starfa með hóp í Tyrklandi? Hér er að finna lista með fjölda Tyrkenskra hópa í leit að samstarfsaðilum.
Til baka
