Leit að samstarfsaðilum
4.2 2012

Nýr gagnagrunnur til að leita að samstarfsaðilum!

       www.Otlas.eu 

Oltas er samevrópskur gagnagrunnur samstaka sem starfa með ungu fólki og eru að leita að samstarfsaðilum. Honum er haldið úti af SALTO stuðningsskrifstofu Evrópu unga fólksins og er aðal tækið til að leita að samstarfsaðilum í verkefni með öðrum æskulýðssamtökum. Inn í Oltas getur þú skoðað áhugasöm samtök og hópa ungs fólks og séð verkefnahugmyndir þeirra.  Þú getur einnig sett inn lýsingu á þínum samtökum eða hóp og sett fram hugmyndir um hvernig verkefni þú vilt finna samstarfsaðila fyrir. Við mælum með að allir sem hafa áhuga á að vinna fjölþjóðleg verkefni með hópum í Evrópu skrái sig inn í Otlas. Það kostar ekki neitt að vera með!

 

Hér er að finna upplýsingar um hvernig þið berið ykkur að við að finna ykkur samstarfshópa. 

Hægt er að:

Leita að samstarfshóp meðal erlendra aðila sem hafa sent EUF óskir um samstarfshópa

Leita að hópum í erlendum gagnabönkum

Senda okkur útfyllt eyðublað um ósk um samstarfsaðila

 

 

 

 



Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is