
Oltas er samevrópskur gagnagrunnur hópa ungs fólks og samstaka sem starfa með ungu fólki og eru að leita að samstarfsaðilum. Honum er haldið úti af SALTO stuðningsskrifstofu Evrópu unga fólksins og er aðal tækið til að leita að samstarfsaðilum í verkefni með öðrum hópum eða æskulýðssamtökum.
Í Oltas getur þú skoðað lista yfir áhugasöm samtök og hópa ungs fólks og séð verkefnahugmyndir þeirra. Þú getur einnig sett inn lýsingu á þínum samtökum eða hóp og sett fram hugmyndir um hvernig verkefni þú vilt finna samstarfsaðila fyrir. Otlas er ætlaður sem tæki til leitar á samstarfsaðilum fyrir alla flokka ungmennaáætlunar ESB - Youth in Action
Við mælum með að allir sem hafa áhuga á að vinna fjölþjóðleg verkefni með hópum í Evrópu skrái sig inn í Otlas. Það kostar ekki neitt að vera með!
Youth for Europe
Alþjóðlegur gagnabanki þar sem hægt er að fletta upp bæði samtökum og verkefnum eftir löndum.
Fjölþjóðlegur "samtaka-banki"
Hér er hægt að finna fjölda samtaka í Evrópu og nágrannalöndunum og skrá ykkar samtök ef þið eruð í leit að samstarfsaðilum.
Tyrkneskur gagnabanki
Langar ykkur að starfa með hóp í Tyrklandi? Hér er að finna lista með fjölda Tyrkenskra hópa í leit að samstarfsaðilum.
Hjálp með leit að samstarfsaðila
Ef það gengur erfiðlega að finna samstarfsaðila getur Evrópa unga fólksins aðstoðað hópa við leitina með því að senda ósk um samstarfsaðila á aðrar skrifstofur EUF og Evróvísis í Evrópu. Ef þið viljið fá hjálp við leit að samstarfsaðilum fyllið út eyðublaðið hér fyrir neðan og sendið til okkar.
Ósk um samstarfsaðila - Eyðublað til útfyllingar