Árleg forgangsatriði
Á hverju ári eru leggur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fram ákveðin forgangsatriði sem höfð skulu til hliðsjónar við gerð umsókna og skipulagningu verkefna.
Forgangsatriði 2012
Eftirfarandi forgangsatriði hafa verið sett fyrir árið 2012:
- Verkefni sem miða að þátttöku ungs fólks í hagvexti fyrir alla, sérstaklega:
- Verkefni sem takast á við atvinnnuleysi ungmenna sem og verkefni sem hvetja til hreyfanleika atvinnulausra ungmenna og virkrar þátttöku þeirra í samfélaginu. Mikil áhersla verður lögð á aðgengi atvinnulausra ungmenna að öllum flokkum áætlunarinnar
- Verkefni sem takast á við fátækt og jaðarvæðingu og hvetja ungt fólk til þess að gera sér grein fyrir og takast á við þessi málefni og þannig stuðla að því að skapa samfélag fyrir alla. Í þessu samhengi skal leggja sérstaka áherslu á þátttöku ungra innflytjenda, fatlaðra ungmenna og þar sem það á við Róma-ungmenni
- Verkefni sem ýta undir frumkvæðisanda ungs fólks, sköpun og frumkvöðlastarf, starfshæfni, einkum í gegnum frumkvæðisverkefni
- Verkefni sem hvetja til heilbrigðrar hegðunar, einkum með því að ýta undir útivist og grasrótaríþróttir sem aðferð til þess að hvetja til heilbrigðs lífsstíls sem og þátttöku allra í samfélaginu, sérstaklega virkrar þátttöku ungs fólks
- Verkefni sem miða að því að auka skilning og aðgerðir ungs fólks við að takast á við hnattrænar áskoranir í umhverfismálum og loftslagsbreytingum og þar með hvetja til þróunnar „grænnar“ færni og hegðunar meðal ungs fólks og þeirra sem starfa að æskulýðsmálum og þeirra þátttöku í sjálfbærum vexti.
Forgangsatriði 2011
Eftirfarandi forgangsatriði hafa verið sett fyrir árið 2011:
- Evrópuár sjálfboðaliðastarfs
- Verkefni sem stuðla að, efla eða kynna sjálfboðaliðastarf
- Verkefni sem stuðla að virkri þátttöku atvinnulausra ungmenna
- Hnattrænar umhverfistengdar áskoranir og loftslagsbreytingar
- Þátttaka ungra innflytjenda og fatlaðra ungmenna
- Hugvit og frumkvöðlastarfsemi