
Þessi handbók er tæki fyrir alla sem hafa hug á að taka þátt í áætluninni Evrópu unga fólksins. Bæði fyrir þá sem ætla að vera „þátttakendur" þ.e. unga fólkið og fólkið í ungmennastarfinu eða „verkefnisstjórar” sem eru fulltrúar þátttakendanna og senda inn umsóknirnar.
Vinsamlegast athugið að áður en farið er að fylla út umsóknareyðublað þarf að skoða handbókina vel. Þar er að finna mjög góðar leiðbeiningar um hvernig á að búa til góð verkefni. Athugið samt að einnig er hægt að fá aðstoð og upplýsingar hjá starfsfólki Evrópu unga fólksins í Sigtúni 42, Reykjavík, sími 551-9300, netfang euf@euf.is
Handbókinni er skipt í þrjá hluta:
Í hluta A er að finna kynningu um áætlunina og almenn markmið hennar. Þar koma einnig fram hvaða lönd taka þátt í áætluninni, forgangsatriðin sem og þeir þættir sem mikilvægastir eru varðandi allar stuðningsaðgerðir. Þessi hluti er ætlaður þeim sem sækjast eftir að ná yfirsýn yfir áætlunina í heild sinni.
Í hluta B er að finna upplýsingar um mismunandi flokka og undirflokka áætlunarinnar. Þessi hluti er fyrst og fremst ætlaður þeim sem vilja fá hárnákvæmar upplýsingar um tegundir og uppbyggingu verkefna sem studd eru af áætluninni.
Í hluta C er að finna nákvæmar upplýsingar um umsóknarferli og lokadagsetningar, valviðmið sem og fjárhagsleg og lögformleg skilyrði. Þessi hluti eru ætlaður öllum sem ætla að senda inn verkefnisumsókn til Evrópu unga fólksins.