Ertu að fara að skila lokaskýrslu?
Hér má finna gagnlegar upplýsingar er varða skil á loksskýrslum
Lokaskýrsla
- Passið að nota rétt lokaskýrslu eyðublað. Það má finna á www.euf.is
- Skila þarf lokaskýrslu útprentaðari og undirritaðari til landskrifstofu EUF í seinasta lagi 2 mánuðum eftir lok verkefnis
- ATH. Einnig þarf að skila lokaskýrslu rafrænt með tölvupósti
- Í lokaskýrslu á að lýsa framkvæmd verkefnisins og gera grein fyrir árangrinum og raunverulegri fjárhagsstöðu
- Landskrifstofa EUF getur tekið sér allt að 45 daga til að fara yfir lokaskýrslu
- Sé eitthvað sem þarf að laga í lokaskýrslu er gefin 45 daga frestur til þess
- Lokagreiðsla miðast við þær upplýsingar sem koma fram í fjárhagskaflanum og er aldrei hærri en 20% af heildar styrkupphæðinni.
- Lokagreiðsla fæst ekki greidd fyrr en Landskrifstofa Evrópu unga fólksins hefur samþykkt lokaskýrslu og nauðsynleg gögn hafa borist.
Gögn sem skila þarf með lokaskýrslu
- Öllum lokaskýrslum þarf að fylgja undirritaður listi með nöfnum allra þátttakenda (frumritið þarf að berast landskrifstofu)
- Skila þarf afriti af kvittunum og flugmiðum (boarding pass) fyrir ferðakostnaði. Þetta á einnig við um ferðakostnað í undirbúningsheimsókn
- Skila þarf afriti af kvittunum vegna kostnaðar sem hlýst af viðbótar miðlun og nýtingu niðurstaðna í öllum flokkum
- Afrit af kvittunum vegna sérstaks kostnaðar (ef við á) – aukakostnaður sem tengist ungu fólki með takmarkaða möguleika/sérþarfir eða sérstökum aðstæðum í verkefninu
- Afrit af kvittunum vegna vegabréfsáritunar/bólusetningar (ef við á)
- Skila þarf afriti af kvittunum fyrir öllum beinum kostnaði í flokki 1.3 (lýðræðisverkefni) og flokki 5.1 (fundir ungs fólks og þeirra sem bera ábyrgð á æskulýðsmálum)
- Stykþegi geymir upprunalegar kvittanir og skilar aðeins inn afritum, þetta á líka við um flugmiða.
- Öll útgáfa er tengdist verkefninu, t.d. bæklinga, plaköt o.s.frv. ásamt allri fjölmiðlaumfjöllum s.s. blaðaúrklippur, hlekkir á heimasíður o.fl.
Nánari upplýsingar er að finna í B-hluta handbókar EUF undir: „Hverjar eru úthlutnarreglurnar“ í öllum flokkum
Ekki þarf að skila afriti af kvittunum fyrir „föstum upphæðum“ og „einingarkostnaði“. t.d. Kostnaður við dagskrá frumkvæðisverkefnis, kostnaður vegna framkvæmdar ungmennaskiptaverkefnis. Styrkþegi þarf samt sem áður að geyma allar kvittanir í 5 ár.
Skoðið vel „reglur varðandi skýrslu- og skjalaskil“ í „hverjar eru úthlutnarreglurnar“ köflum viðeigandi flokks í handbókinni.
Ath! Geyma þarf kvittanir fyrir öllum kostnaði í 5 ár!
Yfirlit yfir kvittanir og kostnað við verkefnið
Við mælum með því að styrkþegar haldi skrá yfir allar kvittanir sem tengjast kostnaði við verkefnið. Þannig verður öll vinnsla fjárhagsskýrslu í lokaskýrslu auðveldari.
Dæmi um slíka skrá