Ertu að fara að sækja um styrk?
Hér má finna útlistingu á því hvernig úthlutun styrkja fer fram og hvað ber að hafa í huga.
Umsóknareyðublað
- Ef notað er umsóknareyðublað á word formi þarf að passa að rétt umsóknareyðublað sé notað
- Ef notað er rafrænt umsóknareyðublað (.pdf skjal) þarf að passa að valinn sé réttur flokkur því að forsendur í umsóknareyðublaðinu breytast eftir því hvað er valið.
Skil á umsóknum
- Umsóknum þarf að skila bæði á rafrænu formi og útprentuðum með undirskrift löggilts fulltrúa verkefnisins.
- Umsóknum þarf að skila þann dag sem umsóknarfrestur rennur út.
- Þann dag þarf að skila á skrifstofu eða póstleggja útprentaða og undirritaða útgáfu.
- Þann dag þarf að senda rafræna útgáfu fyrir miðnæti.
- Ekki er hægt að breyta innihaldi umsókna eftir að umsóknarfrestur er liðinn og þeim hefur verið skilað.
- Ekki er mögulegt að gefa frest á umsóknarskilum
ATH! Hægt er að senda inn umsóknir til yfirlestrar á euf(hjá)euf.is áður en að umsóknarfrestur rennur út. Senda verður inn umsóknir minnst viku fyrir umsóknarfrest. Við mælum með því að þið gerið þetta ef þið hafið tök á því. Þá geta fulltrúar EUF bent ykkur á hvað er hægt að bæta í verkefninu og umsókninni og þar með aukið lýkur ykkar á að fá styrk.
Eftir að umsókn er skilað
- Landsskrifstofa EUF tekur sér 6-8 vikur til að meta umsóknir og kalla til matsnefnd sem leggur til hvaða verkefni fá styrk.
- Að þeim tíma loknum eru umsækjendur látnir vita hvort að verkefni þeirra fái styrk eða ekki.
- Fái verkefnið styrk eru fulltrúar þess boðaðir á fund hjá Evrópu unga fólksins
- þar fá þeir kynningu á því hvað felst í að fá styrk hjá EUF
- Þar eru samningar afhenntir
- Þegar samningar hafa verið undirritaðir af báðum aðilum getur verkefnið hafist og styrkurinn er greiddur út, þó aldrei fyrr en 3 mánuðum eftir að sótt var um.
- Þegar verkefnið hefst fá styrkþegar 80% af styrknum
- 20% af styrknum eru síðan greidd út þegar lokaskýrslu er skila og verkefnið gert upp, hafi styrkþegi fullnýtt styrkinn.