
Framkvæmdakostnað
Sérstakan kostnað (skila þarf afriti af kvittunum með lokaskýrslu)
Undibúningsheimsókn
Í undirbúningsheimsókn mega mest vera 2 þátttakendur frá hverju landi. Ef að þátttakendur eru tveir þarf annar þeirra að vera fulltrúi ungmennanna sem taka þátt í ungmennaskiptunum og hinn að vera hópstjóri sem taka mun þátt í ungmennaskiptunum ásamt hópnum.
Styrkúthlutanir á hvert ungmennaskiptaverkefni á árunum 2007-2010 voru að meðaltali 25.650€, rúmlega 4,2 milljónir króna. Á því tímabili fengu 34 ungmennaskiptaverkefni styrk og námu heildarúthlutanir til ungmennaskiptaverkefna á tímabilinu 872111,9 € sem nemur rúmlega 143 milljónum króna.
ATH! Allar tölur um styrkfjárhæðir eru birtar með fyrirvara um breytingar af hálfu Evrópu unga fólksins. Ávallt skal styðjast við tölur úr nýjustu handbók EUF við gerð umsókna.