
Hópur drengja úr knattspyrndeild Aftureldingar fóru ásamt foreldrum úr foreldrafélagi deildarinnar í 6 daga ungmennaskipti til Svíþjóðar í júní 2010. Þema verkefnisins var Íþróttir og útivist ásamt því að drengirnir fengu að kynnast sænskri menningu og kynna íslenska menningu fyrir sænsku þátttakendunum. Verkefnið tókst mjög vel og hlaut viðurkenningu sem eitt af fyrirmyndarverkefnum EUF í Evrópskri ungmennaviku 2011.