
Styrkþegi: AUS - Alþjóðleg ungmennaskipti
Fjöldi þátttakenda: 12
Styrkur: 12.000 Evrur
Þátttökulönd: Ísland, Pólland, Ítalía, Þýskaland, Lettland, Tyrkland
Tegund verkefnis: Námskeið
Í byrjun ágúst 2010 hélt AUS 6 daga námskeið þar sem markmiðið var að auka hæfni þeirra sem starfa með ungu fólki m.t.t. sjálfboðaliðastarfs milli ríkja. Skoðuð voru áhrif þess bæði á samfélögin þaðan sem sjálfboðaliðinn kemur og á samfélagið þar sem hann starfar. Þátttakendur komu allir frá samtökum sem eru virk í EVS sjálfboðaliðaþjónustunni.