
EVS sjálfboðaliði þarf í mesta lagi að standa straum af 10% af ferðakostnaði (10.000 kr ef ferðakostnaðurinn er 100.000). Allur annar kostnaður fellur á móttökusamtökin. Það er margt sem stendur sjálfboðaliðanum til boða eins og:
Ef þig langar til að fara sem EVS sjálfboðaliði ráðleggjum við þér að skoða
8 örugg skref að frábæru sjálfboðaliðastarfi:
Skref 1
Þú finnur þér sjálfboðaliðastarf sem höfðar til þín. Best er að skoða síðuna Að finna sjálfboðaliðastarf .
Skref 2
Þú velur þér sendisamtök
sjálfboðaliðastarf og þau hjálpa þér að sækja um starfið sem þú hefur valið þér.
Skref 3
Þú, í samstarfi við sendisamtökin, hefur samband við móttökusamtökin sem eru skráð fyrir það starf sem þú valdir þér.
Skref 4
Þú sem sjálfboðaliði, sendisamtökin og móttökusamtökin undirrita samkomulag um samstarf.
Skref 5
Móttökusamtökin sækja um styrk til Evrópu unga fólksins í sínu landi fyrir alla aðila, þ.e. sjálfboðaliðann, sendisamtökin og móttökusamtökin.
Skref 6
Ef styrkumsókn er samþykkt þá hefst undirbúningur hjá sendisamtökum að undirbúa för þína og móttökusamtökin byrja að undirbúa komu þína.
Þú ferð á undirbúningsnámskeið á Íslandi áður en þú ferð. Landsskrifstofa Evrópu unga fólksins á Íslandi skipuleggur það námskeið.
Skref 7
Þú ferð á áfangastað. Móttökusamtökin taka á móti þér og bera ábyrgð á því að koma þér á áfanga- og vinnustað. Þú færð boð um að koma á komunámskeið þar sem þér ber skylda til að mæta á. Sendisamtökunum á Íslandi ber skylda til að vera í góðu sambandi við þig og móttökusamtökin.
Skref 8
Þegar sjálfboðaliðastarfinu er lokið og þú snýrð aftur heim átt þú að skrifa lokaskýrslu þar sem þú metur dvöl þína og það starf sem þú inntir af hendi. Þú undirritar þessa skýrslu og sendir hana til móttökusamtakanna. Hér getur þú skoðað lokaskýrslueyðublaðið.
Ungmennapassi (Youthpass) fyrir sjálfboðaliða
Þegar sjálfboðastarfinu lýkur og verkefninu er lokið eiga sjálfboðaliðar rétt á að fá viðurkenningarskjal fyrir þau störf sem hafa verið unnin í viðkomandi verkefni. Þetta viðurkenningarskjal heitir Ungmennapassi (Youthpass). Í Ungmennapassanum er metin sú framför og þroski sem sjálfboðaliðinn hefur hlotið með því að starfa við verkefni sem sjálfboðaliði.