Hvað er lýðræðisverkefni?
- Samsafn af hugmyndum, reynslu og aðferðafræði til þess að auka þátttöku ungs fólks í samfélaginu.
- Þátttakendur frá a.m.k tveimur Evrópuþjóðum.
- Fjöldi þátttakenda: a.m.k. tveir hópar/samtök frá hverju landi. Lágmark 16 ungir þátttakendur. Annar hópurinn þarf að vera hópur af ungu fólki og hinn að vera hópur sérfræðinga eða þeirra sem hafa með ákvaðanatöku varðandi málefni ungs fólks að gera.
- Lengd verkefnis 3-18 mánuðir.
- Aldurshópur 13-30 ára.
- Sérfræðingar og/eða þeir sem eru í ákvarðanatöku geta verið á öllum aldri. Þeir fá hins vegar ekki styrk úr sjóð Evrópu unga fólksins. Þeirra framlag (ferð, uppihald og gisting) verður að vera fjármagnað af öðrum.
- Lýðsræðisverkefni eru unnin í þremur hlutum: undirbúningur, framkvæmd, mat.
Markmið
-
Að auka þátttöku ungs fólks í lýðræðislegu samfélagi.
-
Að hvetja til þátttöku ungs fólks heima í héraði, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.
Dæmi um verkefni:
- Myndun tengslanets í þeim tilgangi að læra af reynslu annarra í æskulýðsmálum og hvernig þeir hafa hvatt ungt fólk til þátttöku.
- Þarfir og óskir ungmenna um þátttöku þeirra í samfélaginu.
- Ráðstefnur eða námskeið fyrir ungt fólk um lýðræðislegt samfélag þ.á.m. umræða um stofnanir Evrópusambandsins og hlutverk þeirra.
- Umræður milli ungmenna og valdhafa í samfélaginu.
- Atburður sem líkja eftir starfsemi samtaka/félaga/stofnana í lýðræðislegu samfélagi.
Það sem lýðræðisverkefni eru ekki
Lögð er áhersla á að eftirfarandi verkefni eru EKKI styrkhæf undir flokki lýðræðisverkefna:
Í lýðræðisverkefnum er lögð áhersla á að beitt sé óformlegum námsaðferðum