English

Fundir ungs fólks

Í flokk 5.1 er flokkur sem einblínir á fundi ungs fólks og þeirra sem bera ábyrgð á æskulýðsmálum. Hægt er að hafa þessa fundi innanlands eða fjölþjóðlega.

Í þessum undirflokki eru veittir styrkir fyrir samvinnu, námskeið og stefnumótunarsamræður milli ungs fólks, þeirra sem eru virkir í ungmennastarfi og ungmennasamtökum og þeirra sem bera ábyrgð á stefnu í málefnum ungmenna. Stefnumótunarsamræðurnar geta verið í formi funda, ráðstefna eða annara viðburða sem eru skipulagðir á heimasvæði, hérað-, lands- eða á alþjóðlega vísu. Tilgangurinn er að skapa umræðuvettvang fyrir alla áhugsama og gera þeim mögulegt að móta hugmyndir og fylgja þeim eftir.

Hvað er fundur ungs fólks og þeirra sem bera ábyrgð á æskulýðsmálum?

Verkefni skiptast í þrjá hluta:

  • Áætlunargerð og undirbúning
  • Framkvæmd verkefnisins
  • Mat (m.a. er íhugaður möguleiki á hugsanlegri eftirfylgni)

Lögð er áhersla á kenningar og aðferðir óformlegs náms á öllum stigum verkefnisins.

Verkefnum í flokki 5.1 er ætlað að koma einum eða fleiri eftirfarandi viðburðum í framkvæmd:

  • Landsfundi ungmenna: Hér er um að ræða fundi sem er haldnir eru í þátttökulandi áætlunarinnar fyrir heimasvæði, hérað eða allt landið. Tilgangurinn er að:
    • bjóða upp á umræðu, virka þátttöku, samráð og upplýsingar um málefni sem tengjast stefnumótunarsamræðunum, þ.e. stefnu og umræðuefnum Evrópusambandsins
    • undirbúa formlega ráðstefnu fyrir ungt fólk sem haldin er í viðkomandi Evrópusambandslandi við forsetaskipti í sambandinu, 
    • skipulagning viðburðar sem tengist Evrópuviku unga fólksins
    • stuðla að samræðum milli fagsviða og samstarfi varðandi formlega og óformlega kennsluhætti. Á landsfundi ungmenna er líka hægt að taka fyrir röð eða sambland af ofantöldum viðburðum
  • Alþjóðlegum fundi ungmenna: Það eru fundir ungs fólks og stefnumótunaraðila til að ræða og skiptast á skoðunum, góðum starfsaðferðum og/eða ræða tillögur sem borist hafa varðandi forgangsatriði og markmið stefnumótunarumræðnanna, og pólitíska rammann um málefni æskulýðsinsins, sem endurnýjaður var nýlega..


Það sem fundur unga fólksins og þeirra sem bera ábyrgð á æskulýðsmálum er ekki

  • Heimsóknir milli menntastofnanna
  • Heimsóknir ætlaðar í ágóðaskyni
  • Skemmtiferðir
  • Hátíðir
  • Sumarfrí
  • Tungumálakennsla
  • Sýningar/gjörningar
  • Heimsóknir á milli bekkja
  • Íþróttakeppnir
  • Lögskipaðir fundir hjá samtökum
  • Stjórnmálafundir
  • Vinnubúðir

year: 2012 + month: 5
maí 2012
2012-5 = 2012-7
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-2
2012-5 = 2012-1
2012-5 = 2011-11
2012-5 = 2011-11
2012-5 = 2011-10
2012-5 = 2011-10
2012-5 = 2011-9
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
vefrit_3


 

 youthportal01_typo eve_logo_en  eu_flag_yia_en-01litid