English

Dæmi um frumkvæðisverkefni

Hér má sjá dæmi um nokkur af þeim frumkvæðisverkefnum sam fengu styrk hjá Evrópu unga fólksins frá því að áætlunin hóf göngu sína árið 2007. Frá 2007-2010 voru 60 frumkvæðisverkefni styrkt af Evrópu unga fólksins en á þeim tíma sóttu 105 hópar um styrk

 

 

Á vefsíðu SALTO má finna fleiri dæmi um bæði innlend frumkvæðisverkefni og fjölþjóða frumkvæðisverkefni.



Verkefnið fól í sér að skipuleggja og halda námskeið fyrir ungar hreyfihamlaðar stúlkur haustið 2009. Styrkþegar voru fjögur ungmenni á aldrinum 19-30 ára. Þátttakendur á námskeiðið, sem þær sáu um, voru 10 hreyfihamlaðar stúlkur á aldrinum 10-15 ára. Verkefnið var valið besta verkefni Evrópu unga fólksins á verðlaunahátíð í tilefni af Evrópskri ungmennaviku 2011.



Vegurinn heim er heimildarmynd sem byggð er á viðtölum við fimm börn innflytjenda á Íslandi. Í myndinni ræða börnin líf sitt og tilveru hér á landi og lýsa upplifun sinni af því að vera á mörkum ólíkra menningaheima. Þá var líka búið til kennsluefni fyrir miðstig og unglingastig grunnskóla sem nota má í tengslum við myndina. Bæði myndin og kennsluefnið hafa verið gefin út af Námsgagnastofnun.

Borghildur, hópur arkítektúrnema við Listaháskóla Íslands, fékk styrk til þess að rannsaka hegðun fólks í Reykjavík. Í verkefninu var kannað hvernig fólk hegðar sér í mismunandi rýmum í borginni, hvernig fólk nýtir rýmin og hvernig þau eru hönnuð. Verkefninu lauk með útgáfu á bók og kvikmynd, sem báðar heita Borgaraleg hegðun, þar sem niðurstöðurnar eru kynntar.


Hópurinn Ungir aðgerðasinnar fengu styrk fyrir verkefninu Mismunandi staða ungs fólks í fyrrverandi nýlendum Evrópuþjóða 1. september 2008. Markmið verkefnisins var að gera heimildarmynd til að bera saman líf ungs fólks í tveimur fyrrverandi nýlendum Evrópuþjóða, Íslandi og Úganda. Verkefnið tókst mjög vel til úr varð glæsileg 40 mínútna heimildarmynd sem frumsýnd var í Háskólabíó árið 2010. Í myndinni er fylgt eftir þremur ungmennum frá hvoru landi, sjómönnum, leiklistarnemum og frumkvöðlum.


 

year: 2012 + month: 5
maí 2012
2012-5 = 2012-7
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-6
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-2
2012-5 = 2012-1
2012-5 = 2011-11
2012-5 = 2011-11
2012-5 = 2011-10
2012-5 = 2011-10
2012-5 = 2011-9
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
2012-5 = 0001-1
vefrit_3


 

 youthportal01_typo eve_logo_en  eu_flag_yia_en-01litid