Ef þú hefur ekki lokið framhaldsskólaprófi en langar til að mennta þig og þjálfa í starfi kíktu þá á upplýsingarnar hér fyrir neðan.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Símenntun og fullorðinsfræðsla sem nýtist fólki á vinnumarkaði. Markmiðið er að veita starfsmönnum, sem ekki hafa lokið framhaldsskólaprófi, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði.
IÐAN fræðslusetur
Hlutverk IÐUNNAR er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíl-, bygginga- og málmiðngreinum, prentiðnaði, matvæla- og veitingagreinum. Starfsemin beinist að þeim sem ekki hafa lokið námi úr framhaldsskóla.
Verkþjálfun fyrir ungt fólk á krossgötum
Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði. Þar gefst fólki tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám.