Hvað er EVRÓVÍSIR?
Langar þig að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi?
Langar þig að kynnast nýju fólki í nýju landi?
Ef þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum.
Evróvísir er í samstarfi við aðrar skrifstofur í Evrópu sem upplýsa um tækifæri ungs fólks. Viljir þú t.d. vinna á Spáni eitt sumarið þá getur starfsmaður Evróvísis á Íslandi haft samband við starfsmann Evróvísis á Spáni og beðið um upplýsingar og ábendingar um hvernig á að snúa sér í málinu.
Evróvísir veitir upplýsingar um styrki fyrir ungt fólk í Evrópu. Styrkjaáætlanir eru á sviði formlegrar og óformlegrar menntunar, starfsmenntunar og starfsþjálfunar, sjálfboðavinnu sem og æskulýðsmála. Markhópurinn er ungmenni á aldrinum 13-30 ára og fólk sem vinnur með þessum aldurhópi. Hægt er að sækja um styrki í ýmis verkefni og komast í samstarf við fólk í Evrópu með sömu áhugamál og hugsjónir.
Evróvísir sér einnig um Evrópsku ungmennagáttina. Þar er hægt að finna upplýsingar um menntun í 31 Evrópulandi eins og t.d. háskólamenntun, starfsmenntun, tungumálanám og óformlega menntun. Þar er einnig að finna upplýsingar um atvinnumöguleika í Evrópu eins og t.d.í sumarfríum, starfsþjálfun, sjálfboðavinnu og au-pair. Síðan eru þarna upplýsingar um áhugaverðar netsíður og ferðamöguleika í Evrópu.
Evróvísir er hluti af ungmennaáætlun Evrópusambandsins:
Evrópa unga fólksins (EUF)
Laugavegi 170
105 Reykjavík
Sími: +354 551 9300
Starfsmaður: Helga Dagný Árnadóttir