Leonardó styrkir mannaskiptaverkefni sem felur í sér heimsóknir og starfsþjálfun í Evrópu. Mannaskiptaverkefnum er skipt í tvo flokka:
- Mannaskipti eru fyrir fólk í starfsnámi, í starfsmenntaskólum, á iðnsamningi sem og fólk á vinnumarkaði. Starfsþjálfunina má taka sem hluta af námi, eftir að námi er lokið eða á meðan á samningi stendur. Markmið verkefnanna er að auka faglega færni og starfsmöguleika ungs fólks hvar sem er í Evrópu, auka þroska, víðsýni, tungumálakunnáttu og menningarskilning.
- Starfsmannaskipti eru fyrir leiðbeinendur, kennara, fræðslustjóra eða starfsmannastjóra í fyrirtækjum og stofnunum. Styrkir eru einnig veittir til leiðbeinenda/kennara sem vilja auka tungumálakunnáttu vegna starfs síns.