eurodesk_banner_a_heimasidu

Menntun
23.2 2012

Langar þig að mennta þig í Evrópu og víðar?

Hér fyrir neðan er að finna alls konar upplýsingasíður um nám erlendis.

 


Upplýsingastofa um nám erlendis
Hér eru yfirgripsmiklar upplýsingar um nám erlendis. Hægt er að fá aðstoð hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins við leit að námi en best er að byrja að skoða heimasíðuna um nám á eigin vegum. 
 
 
 

Evrópska ungmennagáttin - nám í Evrópulandi
Hér getur þú leitað eftir upplýsingum um menntun eftir landi. Skoðaðu vel borðann vinstra megin á síðunni - þar velur þú land sem þig langar til að fara til og svo velur þú "að læra".  Síðan er hægt að velja að læra ... í skóla, ... í háskóla, ... fyrir vinnu (atvinnulífið), tungumálanám og óformlegt nám.  
 

Braintrack - Universities, Colleges & Careers
Á þessari síðu velur þú heimsálfu og síðan land og þá kemur upp listi yfir háskóla í því landi sem þú hefur valið.
 
 
 

Erasmus - háskólastigið
Erasmus gerir stúdentum kleift að stunda nám eða starfsnám í öðru þátttökulandi í 3-12 mánuði.  
 
 
 

Erasmus - stúdentasamtök
Ef þú ert að spá í að fara í nám erlendis og ætlar að fara í Erasmus stúdentaskipti væri sniðugt að tengja sig við Erasmus stúdentasamtök. Þar getur þú komið þér í samband við aðra sem eru í sömu sporum og þú.
 
 
 

Tungumálaskólar
Á þessari síðu getur þú fundið upplýsingar um tungumálaskóla víða um heim.
 
 

Lýðháskólanám á Norðurlöndum

Hér eru tenglar á upplýsingasíður um lýðháskóla á Norðurlöndunum á heimasíðu Norræna félagsins.  Þar eru einnig upplýsingar um styrki til lýðháskólanáms.

 


AFS - nemendaskipti

AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök. Aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi eru nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára.

http://www.afs.is/

 


Europass
Ef þú ætlar að skrá þig í nám eða starfsþjálfun eða leita þér að vinnu á Evrópusvæðinu þá er Europass ein leið sem getur hjálpað þér að skýra færni þína svo að hún sé auðskilin alls staðar í Evrópu.
 
 
 



Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is