eurodesk_banner_a_heimasidu

Atvinna
18.5 2012
Vantar þig vinnu?  Hér finnur þú upplýsingar um atvinnumöguleika í Evrópu.

Upplýsingar um atvinnu í Evrópu
Evrópska ungmennagáttin er ætluð ungu fólki sem langar til að vinna í öðru Evrópulandi. Þú ferð beint inn á síðu sem heitir „Working“ og þar fyrir neðan eru fjórir valmöguleikar (Traineeships, Finding a job, Working holidays, Au-pair). Síðan getur þú valið land í Evrópu efst í vinstra dálki og skoðað nánari upplýsingar um vinnu í hverju landi fyrir sig.
 

Evrópsk vinnumiðlun

Kíktu á vefsíðu EURES (EURopean Employment Services). Þar er góð leið til að nálgast upplýsingar um atvinnutækifæri hvarvetna í Evrópu.

http://eures.is/


Sumarvinna á Norðurlöndum

Viltu vinna á Norðurlöndum í að minnsta kosti 1 mánuð á tímabilinu maí til september? Þú þarft að vera búsett(ur) á Norðurlöndunum, tala skandinavískt tungumál (dönsku, norsku eða sænsku) og vera á aldrinum 18 – 28 ára.

http://www.nordjobb.net/is


Í atvinnuleit
Atvinnuráðgjafar Hins Hússins aðstoða ungt fólk á aldrinum 17-25 ára í atvinnuleit.
 
 
 

Stúdentamiðlun

Stúdentamiðlun hjálpar íslenskum og erlendum námsmönnum á framhalds- og háskólastigi í leit að starfi, einkum sumar-, hluta- eða tímabundnu starfi.

http://studentamidlun.is/atvinna/


Störf í boði á Íslandi
Vinnumálastofnun heldur skrá yfir laus störf sem í boði eru á landinu öllu. Hér er skrá yfir þau störf sem í boði eru.
 

Evrópsk menntunar- og starfshæfnismappa
Europass er stöðluð menntunar- og starfshæfnismappa. Í Europass möppunni eru fimm skjöl sem lýsa mismunandi þáttum í menntun, starfsþjálfun, starfsreynslu, tungumála- og menningarreynslu, auk óformlegri þátta eins og persónulegri hæfni einstaklings. Hægt er að safna eftirfarandi skírteinum í möppuna: Evrópskri ferilskrá, mati og viðurkenningu á starfsmenntun, viðauka við prófskírteini, starfsmenntavegabréfi og tungumálapassa.
 



Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is