eurodesk_banner_a_heimasidu

Áhugaverðar síður
18.5 2012
Hefur þú áhuga á ferðalögum, myndbandagerð, vísindum, alþjóðlegum samskiptum eða bara fylgjast með umræðum um áhugmálið þitt? Kíktu þá á þessar síður.

Europocket Television

Stuttar og skemmtilegar fréttir fyrir ungt fólk unnið af ungu fólki. Unga fólkið bak við fréttirnar eru krakkar sem eru með BA gráðu í fjölmiðlafræði, stjórnmálafræði og almannatengslum og hafa áhuga að fá hugmyndir frá þér – þú getur jafnvel sent þína eigin frétt/myndband inn á europocket tv.

http://europocket.tv/


Vísindavefurinn

Vísindavefurinn fjallar um öll vísindi, hvort sem um ræðir stjörnufræði eða sálfræði. Hægt er að lesa eldri svör sem og leggja fram nýjar spurningar um allt milli himins og jarðar. Mjög skemmtilegur vefur sem nýtist bæði til afþreyingar, starfs og náms.

http://visindavefur.is/


Ferðast til Evópu
Þessi síða er sniðug fyrir þá sem vilja ferðast í einhverju Evrópulandinu. Þú velur land efst í vinstra dálki og færð upp alls konar upplýsingar um ferðamöguleika í viðkomandi landi.
 

Interrail
Ódýrasta leiðin til að skoða Evrópu er að ferðast í lest með svokallað „InterRail“ vegabréf. Þú getur ráðið þinni ferð sjálf(ur) og hefur 30 áfangastaði í Evrópu til að velja.
 

Snorri
Snorri West verkefnið veitir ungu fólki á aldrinum 18-25 ára tækifæri til þess að heimsækja ,,Nýja Ísland"  í Kanada og kynnast þar menningu, tungumáli og sögu svæðisins. Þetta sex vikna sumarverkefni er frábært tækifæri til að kynnast vestur-íslenskri menningu, bæta enskukunnáttuna, kynnast öðruvísi starfsumhverfi o.s.frv.
 

Bakpokinn
Tilgangur síðunnar er fyrst og fremst að aðstoða fólk sem vill sjá heiminn fyrir utan Evrópu. Hér eru ýmsar upplýsingar eins og t.d. um vegabréfsáritanir, flug og gistingu, leikhús- og tónleikamiða, málaskóla, sjálfboðaliðastarf og námskeið. Einnig er samansafn af tenglum um Íslendinga á ferðalagi erlendis fyrr og nú undir "Ferðablogg".
 

Nínukot
Nínukot býður upp á „Work & Travel“ verkefni í Ameríku, Evrópu og Eyjaálfu til að kynnast nýjum menningarheimum. Á þessari síðu er einnig a finna upplýsingar um Au-pair í Bandaríkjunum og sjálfboðavinnu um allan heim.
 

Hugi
Þessi síða býður upp á umræður og greinar í hinum ýmsu áhugamálum. Þar er t.d. efni um bókmenntir og listir, íþróttir, kvikmyndir, tónlist, margmiðlun, tilveruna, vísindi og fræði svo eitthvað sé nefnt.
 

Eurodesk í Þýskalandi

Hér eru sérstaklega upplýsingar fyrir ungt fólk sem vill fara til Þýskalands.

http://www.rausvonzuhaus.de/germany




Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is