Næsti umsóknarfrestur er

1. september
2010

Vegna verkefna sem
hefjast:
1. desember 2010 -
30. apríl 2011



.
Velkominn á heimasíðu Evrópu unga fólksins
Samstarf við nágrannalönd

Þessi flokkur er byggður upp á sömu forsendum og allir hinir flokkarnir. Hér koma inn lönd sem teljast ekki til aðildarríkja áætlunarinnar. Til að hægt sé að búa til verkefni með nágrannalandi þá verður að koma að verkefninu að lágmarki eitt ESB land. Ísland getur því ekki tekið þátt í tvíþjóðaverkefnum í þessum flokk. 

Þessi flokkur er miðaður við nágrannalönd Evrópu unga fólksins. Þetta er 24 lönd sem hægt er að hafa annarsvegar ungmennaskipti við eða búa til verkefni eins og er í flokk 4.3. Hérna er semsagt sambland af flokki 1.1- ungmennaskipti og 4.3-þjálfun og samstarf

Markmið þessa flokks er að hafa samstarf við þessi nágrannalönd og efla samskiptin.

Markmiðið er að vinna að samstarfi og ungmennaskiptum við aðila frá öðrum heimsálfum á sviði æskulýðsmála og óformlegrar menntunnar. Þessi flokkur styður við verkefni sem ná til ungs fólks og samtaka frá hinum svokölluðu "nágrannalöndum". Það eru þau lönd sem eru í Youth in Action verkefninu en eru ekki aðildarlönd að ESB.

Þessi flokkur styður við ungmennaskipti (flokkur 1.1.) - helst fjölþjóðleg en útilokar ekki tvíþjóða- sem gerir nokkrum hópum af ungu fólki frá bæði aðildarríkjunum og nágrannalöndunum fært að hittast og taka þátt saman í ýmiskonar verkefnum

Einnig nær hann yfir þjálfun og samstarf (flokkur 4.3) þeirra sem eru virkir í starfi með ungu fólki og ungmennasamtökum, og myndun samstarfsnets samtaka sem eru frá aðildarlöndum og nágrannalöndum.

Til baka

  

Vefrit Evrópu unga fólksins
 

Handbók
Umsóknareyðublöð og lokaskýrslur
Almenn ákvæði samnings
Upplýsingar fyrir sjálfboðaliða
Facebook
Vefsíður

 


 

 




umfi

umfi
Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is