Næsti umsóknarfrestur er

1. september
2010

Vegna verkefna sem
hefjast:
1. desember 2010 -
30. apríl 2011



.
Velkominn á heimasíðu Evrópu unga fólksins
Þjálfun og samstarf

Þjálfun og samstarf byggir á tveimur flokkum sem hafa mismunandi áherslur í þjálfun og samstarfi. Þetta eru flokkar 4.3 og 5.1

 

Flokkur 4.3 er aðeins fyrir þau lönd sem koma að ungmennaáætluninni, leggur áherslu á að styðja við verkefni fyrir þá sem eru virkir í málefnum ungs fólks og æskulýðsmálum á evrópska vísu. Þróa samstarf og samvinnu á milli þeirra sem starfa á þessu sviði. Hér eru margskonar þjálfunar og samstarfsmöguleikar, eða átta talsins.

 

Lærlingsstarf

Stutt dvöl hjá samstarfsamtökum í öðru landi með það að markmiði að skiptast á hugmyndum, læra nýja hluti og/eða til að byggja upp langtíma samstarf með því að fylgjast með á staðnum.

Heimsóknir vegna mögulegs samtarfs

Stuttur fundur með hugsanlegur samstarfsaðilum til að kanna og /eða undirbúa væntanleg fjölþjóðleg verkefni. Þessar heimsóknir hafa það að markmiði að bæta og þróa samstarf sem er nú þegar til og/eða til að undirbúa væntanleg verkefni í Evrópu unga fólksins verkefninu

Matsfundir

Fundir sem eru skipulagðir af samstarfsaðilum með það að markmiði að meta fyrri fundi, námskeið, þjálfunarnámskeið. Þessir fundir hjálpa samstarfsaðilum að meta og ræða hugsanlega eftirfylgni eftir að hafa framkvæmt hefðbundið verkefni.

Heimsóknir

Skipulögð heimsókn, til stutts tíma, sem býður upp á að kynnast æskulýðsstarfi og/eða stefnumótun í æskulýðsmálum í einu landi. Þessi heimsókn er byggð á þema og inniheldur heimsóknir og fundi með mismunandi verkefni og samtökum í því landi sem farið er til.

Byggja upp samtarfs

Atburður sem er skipulagður með það í huga að leyfa þátttakendum að finna samstarfaðila í fjölþjóðlegt samstarf og/eða til að þróa verkefni. Uppbygging samstarfs kemur saman hugsanlegum samstarfsaðilum og auðveldar þróun á nýjum verkefnum með fyrirfram ákveðnu efni og/eða einn flokk Evrópu unga fólksins.

Námskeið

Námskeið sem er skipulagður er með fyrirfram ákveðið þema eða þemu í huga sem snerta æskulýðsvettvanginn,  og er gert til að búa til vettvang fyrir umræður, skiptum á góðum hugmyndum og  hugmyndafræðilegum innlögnum,

 

Þjálfunarnámskeið

Námskeið með ákveðnum lærdómsmarkmiðum sem byggja á fyrirfram ákveðnum umræðuefnum sem hafa það að leiðarljósi að auka við hæfni, þekkingu, færni og viðhorf. Þjálfunarnámskeiðin eiga að leiða til aukinna gæða í æskulýðsstarfi og verkefnum sem Evrópa unga fólksins styrkir.

Búa til nýtt samstarfsnet

Sambland eða röð verkefna sem miða að því að búa til nýtt samstarf, eða til að styrkja og víkka samstarf sem þegar er í gangi undir Evrópu unga fólksins verkefninu.

 

Flokkur 5.1 er flokkur sem einblínir á fundi ungs fólks og þeirra sem bera ábyrgð á æskulýðsmálum. Hægt er að hafa þessa fundi innanlands eða fjölþjóðlega. Þetta er aðeins fyrir aðildarlönd áætlunarinnar.

Eins og með alla aðra flokka hjá Evrópu unga fólksins þarf að byggja verkefnin á þema og forgagnsatriðum. Þau er að finna í A hluta Handbókarinnar.

 Öll þessi verkefni hafa mismunandi þátttakendafjölda og hversu langt það má vera. í B hluta Handbókarinnar eru allir flokkar áætlunarinnar. í hverjum kafla fyrir sig er farið í hvaða kröfur eru settar fram um umsækjendur, fjölda þeirra sem koma að verkefninu, hvar verkefnið má vera, hvar á að sækja um o.s.frv.

Til baka

  

Vefrit Evrópu unga fólksins
 

Handbók
Umsóknareyðublöð og lokaskýrslur
Almenn ákvæði samnings
Upplýsingar fyrir sjálfboðaliða
Facebook
Vefsíður

 


 

 




umfi

umfi
Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is