Næsti umsóknarfrestur er
1. september
2010
Vegna verkefna sem
hefjast:
1. desember 2010 -
30. apríl 2011
Hvað skal gera?
Hérna eru upplýsingar um hvernig er best að snúa sér ,og þá hvert, ef þig langar að fara sem sjálfboðaliði á gegnum Evrópsku sjálfboðaliðaþjónustuna. Hér má finna leiðarvísi um Evrópsku sjálfboðaliðaþjónustuna á ensku
· Hvað er Evrópsk sjálfboðaliðaþjónusta?
· Hvað getur sjálfboðaliðaþjónustan gert fyrir þig?
· Hverskonar verkefni eru í boði?
· Hver er hvað?
8 örugg skref að frábæru sjálfboðaliðastarfi
Skref 1
Sjálfboðaliðinn finnur sér verkefni í gagnagrunninum
Hægt er að leita t.d eftir landi og/eða þema
Dæmi: setur inn Ireland og velur í þema Youth Leisure.
Skref 2.
Sjálfboðaliðinn finnur sér sendisamtök
(einnig hægt að finna fyrst sendisamtök og svo verkefni)
Skref 3.
Þegar búið er að finna sér verkefni sem höfðar til manns þá er að setja sig í samband við þá sem sjá um verkefnið, og sendisamtök sé það ekki búið.
Skref 4.
Sjálfboðaliðinn, sendisamtök og móttökusamtök undirrita samkomulag um samstarf.
Skref 5.
Móttökusamtök sækja um styrk vegna komu sjálfboðaliðans.
Skref 6.
Ef styrkumsókn er samþykkt þá hefst undirbúningur hjá sendisamtökum að undirbúa för sjálfboðaliðans og hjá móttökusamtökum að undirbúa komu hans.
Sjálfboðaliðinn fer á undirbúningsnámskeið sem annaðhvort sendisamtökin sjá um eða Landsskrifstofa Evrópu unga fólksins.
Skref 7.
Sjálfboðaliðinn fer á áfangastað. Þar fer hann á námskeið við komuna.
Sendisamtök viðheldur góðu sambandi við sjálfboðaliðann og framkvæmdaraðila verkefnisins.
Skref 8.
Sjálfboðaliðinn lýkur sínu sjálfboðastarfi og snýr aftur heim. Þegar heim er komið þá skrifar sjálfboðaliðinn lokaskýrslu þar sem hann metur dvöl sína og það starf sem hann innti af hendi í sjálfboðastarfinu. Þessa skýrslu á að senda til móttökusamtaka undirritaðri af sjálfboðaliðanum.
Sjálfboðaliðinn gæti svo komið að undirbúningi annarra sjálfboðaliða sem eru að undirbúa sig til að fara sem sjálfboðaliðar.
Ef frekari upplýsingar vakna um þetta ferli þá er hægt að kynna sér handbók áætlunarinnar eða hafa beint samband við Evu Vilhjálmsdóttur Evrópu unga fólksins, eva(hjá)euf.is eða í síma 551 9300.
Hérna að neðan eru nokkrir fróðleiksmolar um sjálfboðaliðaþjónustuna og hvað hún stendur fyrir.
Hvað er Evrópsk sjálfboðaliðaþjónusta?
Evrópska sjálfboðaliðaþjónustan er hluti af ungmennaáætlun Evrópusambandsins. Sjálfboðaliðaþjónustan er fyrir ungt fólk á aldrinum 18-30 ára.
Sjálfboðastarfið byggir á því að vinna að ýmsum verkefnum fyrir samtök og hópa í öðru landi en heimalandinu. Öll lönd Evrópusambandsins, auk Íslands, Noregs, Tyrklands og Lichtenstein, eru aðilar að þessari ungmennaáætlun og nefnast þá aðildarlönd áætlunarinnar (e.programme countries).
Við styrkjum viðurkennd móttöku- sendi- og skipulagssamtök og fellur enginn kostnaður á sjálfboðaliða.
Hvað getur ESÞ gert fyrir mig?
Það að vera sjálfboðaliði í Evrópu getur verið góð leið til að kynnast öðru landi. Þú færð mikla reynslu af því að búa í öðru landi, að vinna í nýju umhverfi, að læra nýtt tungumál, svo ekki sé minnst á alla þá vini sem þú átt eftir að eignast. Sjálfboðastarfið í þessum verkefnum er frá 2 mánuðum til allt að 12 mánuðum.
Hverskonar verkefni eru í boði?
Verkefni eru í boði í öllum 32 aðildarlöndum áætlunarinnar. Hægt að fara inn í gagnagrunn þar sem öll verkefnin eru. Hægt er að velja sér verkefni eftir landi, borg eða einhverjum öðrum þætti t.d þema verkefna. Verkefnin eru m.a byggð á eftirfarandi þemum:
- listir og menning
- umhverfið
- vinna með fötluðum
- fjölmiðlun og samskipti
- mismunun
Það eru um 29 mismunandi þema sem verkefnin eru byggð á.
Til að sjá öll þau verkefni sem eru í boði þarf að fara inn á gagnagrunn verkefna. Þar er hægt að velja eftir landi, þema o.fl.
Hver er hvað?
Það eru alltaf þrír aðilar (að lágmarki) sem koma að hverri umsókn: sjálfboðaliðinn, sendisamtök og móttökusamtök.
Móttökusamtök:
Móttökusamtök bera ábyrgð á eftirfarandi:
- að búa til áhugavert verkefni
- að sækja um styrkinn til Landsskrifstofu Evrópu unga fólksins í sínum landi
- að sjá um kaup á farmiðum frá heimalandi sjálfboðaliðans til áfangastað, og til baka
- að sjá sjálfboðaliðanum fyrir fæði og húsnæði
- að tryggja öryggi sjálfboðaliðans
- að styðja sjálfboðaliðann í gegnum allt verkefnið.
Móttökusamtökin eru umsóknaraðili verkefna og þar af leiðandi styrkhafar.
Umsóknaraðili verkefnisins fær styrk til að fá til sín sjálfboðaliða. Styrkurinn er fyrir ferðakostnaði, fæði, uppihaldi og vasapeningum sjálfboðaliðans sem og kostnaði við framkvæmd á verkefninu. Allir sjálfboðliðar eru tryggðir á meðan þeirra verkefni stendur. Sjálfboðaliðinn á ekki að bera neinn kostnað sjálfur og á ekki að leggja til neina fjármuni við framkvæmd verkefnisins.
Sjálfboðaliðinn:
Sjálfboðaliðinn á ekki að leggja fram neina fjármuni vegna verkefnisins. Styrkt er fyrir ferðakostnaði, fæði og uppihaldi, vasapeningum og öllum námskeiðum og þjálfunum sem sjálfboðaliðinn tekur þátt í. Athugið að upphæð vasapeninga er misjöfn eftir löndum og er upphæðin miðuð við mánaðarlegar greiðslur.
Sjálfboðaliðinn þarf að taka þátt í öllum þeim námskeiðum sem eru vegna þess sjálfboðaliðsstarfs sem hann fer í. Fjöldi námskeiða er 3-4.
Það er eitt námskeið í heimalandinu áður en farið er af stað, ca 1-2 dagar.
Næsta námskeið er þegar komið er til þess lands sem verkefnið fer fram í. Það stendur yfirleitt í allt að eina viku.
Ef verkefnin eru 6-12 mánuðir eru námskeið um mitt verkefnatímabilið.
Í lok verkefnis, yfirleitt þegar komið er aftur heim, fer lokamat fram. Matið fer fram með sendisamtökunum, þar sem farið er yfir verkefnið í heild. Þá skilar sjálfboðaliðinn lokaskýrslu vegna verkefnisins þar sem kemur fram hans upplifun af sjálfboðastarfinu sem hann tók þátt í.
Þegar sjálfboðastarfinu lýkur og verkefninu er lokið fá sjálfboðaliðar viðurkenningarskjal fyrir þau störf sem hafa verið unnin í viðkomandi verkefni. Þetta viðurkenningarskjal heitir Ungmennapassi (Youthpass). Í Ungmennapassanum er metin sú framför og þroski sem sjálfboðaliðinn hefur hlotið með því að starfa við verkefni sem sjálfboðaliði.
Sendisamtök:
Hvaða samtök sem er geta verið sendisamtök og þau bera ábyrgð á:
- vali á sjálfboðaliðanum og undirbúningi hans áður en farið er af stað
- að halda sambandi við sjálfboðaliðann á meðan hann/hún er erlendis við sjálfboðastörfin.
