Næsti umsóknarfrestur er

1. september
2010

Vegna verkefna sem
hefjast:
1. desember 2010 -
30. apríl 2011



.
Velkominn á heimasíðu Evrópu unga fólksins
Lýðræðisverkefni
 
Markmið
Að auka þátttöku ungs fólks í lýðræðislegu samfélagi.
Að hvetja til þátttöku ungs fólks heima í héraði, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi. 
 
Hvað er lýðræðisverkefni?
  • Samsafn af hugmyndum, reynslu og aðferðafræði til þess að auka þátttöku ungs fólks í samfélaginu.
  • Þátttakendur frá a.m.k tveimur Evrópuþjóðum.
  • Fjöldi þátttakenda: a.m.k. tveir hópar/samtök frá hverju landi. Lágmark 16 ungir þátttakendur.
  • Lengd verkefnis 3-18 mánuðir.
  • Aldurshópur 13-30 ára.
  • Sérfræðingar og/eða þeir sem eru í ákvarðanatöku geta verið á öllum aldri. Þeir fá hins vegar ekki styrk úr sjóð Evrópu unga fólksins. Þeirra framlag (ferð, uppihald og gisting) verður að vera fjármagnað af öðrum.
  • Lýðsræðisverkefni eru unnin í þremur hlutum: undirbúningur, framkvæmd, mat.

Við styrkjum: 

  • 75% af öllum samþykktum kostnaði (ferðakostnaður, uppihald, útgáfukostnaður, kostnaður vegna námskeiða o.fl
  • Styrkur getur mest verið 50.000 €
Allar tölur um styrki eru birtar með fyrirvara um breytingar af hálfu Evrópu unga fólksins
 
Dæmi um verkefni:
  • Myndun tengslanets í þeim tilgangi að læra af reynslu annarra í æskulýðsmálum og hvernig þeir hafa hvatt ungt fólk til þátttöku.
  • Þarfir og óskir ungmenna um þátttöku þeirra í samfélaginu.
  • Ráðstefnur eða námskeið fyrir ungt fólk um lýðræðislegt samfélag þ.á.m. umræða um stofnanir Evrópusambandsins og hlutverk þeirra.
  • Umræður milli ungmenna og valdhafa í samfélaginu.
  • Atburður í líkingu við starfsemi samtaka/félaga/stofnana í lýðræðislegu samfélagi.
Áhersla er lögð á óformlega fræðslu.
 
 
Dæmi um lýðræðisverkefni
40 ungmenni frá 11 Evrópuþjóðum hittust í 10 daga til að líkja eftir vinnu þingmanna hjá Evrópuþinginu og ákvarðanatöku þeirra. Ungu þátttakendurnir útnefndu einn þátttakenda sem forseta þingsins og skipuðu síðan í nefndir til að fjalla sameiginlega um málefni ESB og málefni unga fólksins í Evrópu. Eftir það fóru þau í þingsal og tóku ákvarðanir um málefni ungmenna í Evrópu. Á þessum 10 dögum hittu þau einnig fulltrúa frá stofnunum ESB og þá sérstaklega þingmenn.
Til baka

  

Vefrit Evrópu unga fólksins
 

Handbók
Umsóknareyðublöð og lokaskýrslur
Almenn ákvæði samnings
Upplýsingar fyrir sjálfboðaliða
Facebook
Vefsíður

 


 

 




umfi

umfi
Landsskrifstofa Evrópu Unga Fólksins · Sigtúni 42, 2.hæð · 105 Reykjavík Sími 551 9300 · Bréfasími 551 9393 · Netfang: euf hjá euf.is