Markmið
Að ungt fólk komi hugmyndum sínum á framfæri.
Að ungt fólk sé í aðalhlutverki hvað varðar framkvæmdina á verkefninu.
Að frumkvæði, framtakssemi og sköpunargáfa sé höfð að leiðarljósi.
Hugmyndin um óformlega menntun er þýðingarmikill þáttur í frumkvæðisverkefni. Einnig er hugmyndin að leggja af mörkum til að stuðla að uppbyggingu Evrópu mikilvæg sem og hugsunin að vera Evrópubúi en ekki eingöngu Íslendingur.
Hvað er Frumkvæði ungs fólks
- Ungt fólk verður að hafa frumkvæði að frumkvæðisverkefni.
- Ungt fólk verður að undirbúa og skipuleggja frumkvæðisverkefni.
- Ungt fólk verður að taka þátt og sjá um framkvæmd á frumkvæðisverkefni.
- Aldurstakmark 18-30 ára. 15-17 ára geta tekið þátt í verkefninu ef þeir eru með leiðbeinanda sér við hlið.
- Frumkvæðisverkefni geta verið unnin eingöngu af Íslendingum og er lágmark þátttakenda 4.
- Frumkvæðisverkefni geta verið samstarf fleiri þjóða og er lágmark þátttakenda 8 (4 þátttakendur í hverjum hópi).
- Lengd verkefnis getur verið 3-18 mánuðir.
- Frumkvæðisverkefni eru unnin í þremur hlutum: undirbúningur, framkvæmd, mat.
og í fjölþjóðlegum verkefnum:
70% af ferðakostnaði í fjölþjóðlegum verkefnum
100% af samþykktum kostnaði vegna undirbúningsheimsóknar (sjá fyrir neðan)
Í undirbúningsheimsókn - 56€ x fjöldi daga (mest 2) x fjöldi þátttakenda (1 eða 2)
Allar tölur um styrki eru birtar með fyrirvara um breytingar af hálfu Evrópu unga fólksins
Undirbúningsstyrkur fyrir fjölþjóðaverkefni
Ef þátttakendur telja það nauðsynlegt að verkefnisaðilar hittast til að skipuleggja verkefnið og skrifa umsókn þá er hægt að sækja sérstaklega um undirbúningsstyrk. Undirbúningur getur verið í mesta lagi 2 dagar að undanskildum ferðadögum. Í mesta lagi geta 2 þátttakendur í hverjum hópi tekið þátt í undirbúningi. Nákvæm tímatafla undirbúningsvinnunnar verður að fylgja með umsókn.
Dæmi um frumkvæðisverkefni
12 ungmenni frá Tyrklandi þróuðu verkefni fyrir börn sem eru skyldug til að vinna á götunni. Unga fólkið var miður sín vegna aðstæðna barnanna á götunni og langaði til að gera eitthvað í því. Styrkur frá Evrópu unga fólksins og samskipti við félagsmiðstöð á svæðinu hjálpaði þeim að framkvæma þetta verkefni. Ungmennin tóku viðtöl við börnin um þeirra hugarheim og aðstæður á götunni og spurðu þau hvað þau helst vildu vera að gera. Þá vildu þau flest læra á tölvur og þar með kviknaði hugmyndin um tölvukennslu fyrir þennan hóp. Tölvukennslan tók þrjá mánuði og þátttakendur voru 70 börn.