Markmið
Að læra um menningu annarra Evrópuþjóða.
Að læra af öðrum.
Að hvetja til þeirrar hugsunar að vera Evrópubúi en ekki eingöngu Íslendingur, Frakki eða Pólverji o.s.frv.
Hvað er ungmennaskipti?
- Hópar af ungu fólki frá tveimur eða fleirum Evrópuþjóðum hittast í þeim tilgangi að læra um þjóð og menningu landanna.
- Þátttökulönd eru aðilar að ungmennaáætlun ESB.
- Skipuleggjendur eru löglega skipuð samtök/stofnanir.
- Þátttakendur eru frá 13 – 25 ára.
- Fjöldi þátttakenda eru að lágmarki 16 þátttakendur og ekki fleiri en 60.
- Í tvíþjóða samstarfi verður hver hópur að hafa minnst 8 þátttakendur.
- Í þríþjóða samstarfi verður hver hópur að hafa minnst 6 þátttakendur.
- Í fjölþjóða samstarfi verður hver hópur að hafa minnst 4 þátttakendur.
- A.m.k. einn hópstjóri verður að fylgja hverjum hópi.
- Ungmennaskiptin fara fram í einu þátttökulandi.
- Ungmennaskiptaverkefni eru unnin í þremur hlutum: undirbúningur, framkvæmd,mat.
- Lengd verkefnis (undirbúningur, framkvæmd og mat) 15 mánuðir í mesta lagi.
- Lengd ferðarinnar 6-21 dagur að undanskildum ferðadögum.
- Nákvæm tímatafla verður að fylgja hverri umsókn.
Við styrkjum:
-
70% af ferðakostnaði frá heimili til heimilis
-
490€ Föst upphæð vegna framkvæmdakostnaðar verkefnis
-
270€ x fjöldi verkefnastjóra (hámark 1500€)
-
23€ x fjöldi þátttakenda x fjöldi gistinátta á verkefnistímanum
-
Allt að 500€ x fjölda verkefnisstjóra (hámark 2500€) vegna sérstakra aðgerða við dreifingu og nýtingu niðurstaðna
-
Undirbúningskostnaður 480€ x fjöldi verkefnisstjóra
-
100% af samþykktun kostnaði vegna undirbúningsheimsóknar (sjá fyrir neðan)
-
Í undirbúningsheimsókn - 56€ x fjöldi daga (mest 2) x fjöldi þátttakenda (1 eða 2)
Auk þess er hægt að fá styrk fyrir öllum "óviðráðanlegum aukakostnaði" t.d. vegna þátttakenda sem búa við takmarkaða möguleika
Allar tölur um styrki eru birtar með fyrirvara um breytingar af hálfu Evrópu unga fólksins
Áhersla er lögð á óformlega fræðslu.
Undirbúningsstyrkur
Ef þátttakendur telja það nauðsynlegt að verkefnisaðilar hittast til að skipuleggja verkefnið og skrifa umsókn þá er hægt að sækja sérstaklega um undirbúningsstyrk. Undirbúningur getur verið í mesta lagi 2 dagar að undanskildum ferðadögum. Einn þátttakandi í hverjum hópi getur tekið þátt í undirbúningi. Nákvæm tímatafla undirbúningsvinnunnar verður að fylgja með umsókn.
Eftirfarandi eru EKKI talin vera ungmennaskiptaverkefni:
- Heimsóknir á milli menntastofnana
- Heimsóknir ætlaðar í ágóðaskyni
- Skemmtiferðir
- Hátíðir
- Tungumálakennsla
- Sýningar / gjörningar
- Heimsóknir milli bekkja
- Íþróttamót
- Lögskipaðir fundir hjá samtökum
- Vinnubúðir
Dæmi um ungmennaskipti
40 ungmenni frá Írlandi, Litháen, Póllandi og Bretlandi hittust í Omagh á Norður-Írlandi. Yfirskrift verkefnisins var mikilvægi heilsusamlegs lífernis og áhersla lögð á hreyfingu utandyra. Unga fólkinu var skipt í hópa og tóku þau annars vegar þátt í hinum ýmsu íþróttagreinum og hins vegar í vinnuhópum þar sem umræða fór fram um kosti hreyfingar á sál og líkama. Hvert þátttökuland var einnig með fyrirlestur um sögu lands og menningu. Áhersla var lögð á að byggja upp sjálfstraust einstaklinganna og umburðarlindi þeirra, opna huga þeirra og læra um menningu annarra þjóða.